Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1973, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.02.1973, Blaðsíða 20
PÓSTURINN Hvaff er byg-gffastefna UMFÍ? Nú á tímum endurreisnar og allsherjar skipulagningar þykir tilhlýða að hugsa svolítið um vandkvæði menningar- strauma undanfarinna ára. „Byggðastefna UMFÍ“. Einhverjum kemur sjálfsagt í hug sú spurning hvort fátækleg stjórn Ungmennafélags íslands hafi einhverjar mótaðar skoðanir í byggða- og búsetuþróun íslands. Að sjálfsögðu er full ástæða til að ætla að svo sé, en hinsvegar er rétt að undir- strika það, að þegar hér er rætt um UMFÍ, þá er átt við samtökin sem spegil- mynd einstaklinganna. Ekki ætla ég að gerast túlkur heildarinnar um þessi mál, heldur vil ég reyna að skjóta fram nokkrum hugmyndum og athugasemdum öðrum til umþenkingar. Mér hefur fundist undanfarandi ár að landsbyggðin geri sífellt stærri kröfur um jafnvægi í byggð landsins. Mig furð- ar því hversu hljótt hefur verið um þessi mál á vettvangi ungmennafélaganna. Ef byrjað er að athuga höfuð skepn- unnar, þá vaknar sú spurning hvort það sé á réttum stað á skrokknum. Ung- mennafélögin eru flest starfandi vítt um land og jafnvel ríkjandi í dreifbýli, hvers vegna er þá verið að planta þjónustu- miðstöð samtakanna í sjálfum aðdrátt- arsvelgnum sem Reykjavík er? Er það til þess að sannfæra dreifbýlið um nauð- syn höfuðstöðva í höfuðstað? Af hverju ekki að ríða á vaðið í byggðastefnu sem staðfesti jafnvægi í byggð landsins? Af hverju ekki að staðsetja skrifstofu UMFÍ í byggðakjarna úti á landi t. d. Akur- eyri, Egilsstöðum, Blönduósi Selfossi eða Sauðárkróki? Ef málið er skoðað niður í kjölinn fæ ég ekki séð að aðstaða til þjónustu sé neinu lakari á þessum stöðum. Allar hug- dettur um ómissandi möguleika til þjón- ustu frá Reykjavík tel ég fráleitar. Sam- göngur eru orðnar nokkuð kerfisbundn- ar og flesta hluti má panta og afgreiða með samtölum og tilskrifum ef þar fjalla kunnáttumenn um málin. Að öðru leyti tel ég að staðsetning höf- uðstöðvanna utan Reykjavíkur mundi skapa meiri skipulagðar heimsóknir og samskipti heildarsamtakanna við aðild- arsamtökn. í fljótu bragði finnst mér fleiri rök felast í þvi að landssamtök hafi samband við börnin sín í hópum í heima- byggð, heldur en börnin séu hvert í sínu lagi að sjúga spena mömmu gömlu. Jafnvægi í byggð landsins á að vera okkar mál. ísland allt. Goffi. Borgarnesi 25.-1., 1973. Gengur ei vel með greiðsluna gleðst þó yfir Skinfaxa. Eykur hjá mér eldinn vona að ísland njóti dætra og sona. Árið í fyrra og einnig nú ætla að senda í góðri trú, að mig rukkir ef það hækkar eins ef blaðið líka stækkar. Berðu kveðju beztu mönnum, bara þeir geri alla að sönnum íslendingum með aleinn vilja, uppeldisins takmark skilja. Lengra ekki ljóða stef litla þekking á því hef. Þetta sendi þó með geig og þakklæti, fröken Sigurveig. íslandi allt. Jón Fr. Hjartar (sign.) 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.