Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1973, Síða 4

Skinfaxi - 01.02.1973, Síða 4
FORSÍÐUMYNDIN cr tekin á íslandsmeistaramótinu í blaki í vetur. Það eru piltar úr Umf. Hvöt sem eru í hvítum bolum og blaka knettinum vfir netið. Þrír úr liði íþróttafélags Menntaskólans á Akureyri eru í hávörn við netið. Á töflunni í baksýn rná sjá að norðanmenn eru komnir með fleiri stig þegar mvndin er tekin. Það vom samt Hvatar-piltamir sem sigruðu og urðu ís- landsmeistarar. Á bls. 8—10 er viðtal við formann Blaksambands íslands, AI- bert H. N. Valdimarsson. GETRAUNIR Ungmennafélögin og héraðssamböndin fengu rúmlega 1,7 milljónir króna í tekj- ur af sölu knattspvrnugetraunaseðla á ár- inu 1971. Þessi fjáröflunarleið krefst vinnu og góðrar skipulagningar, en gef- ur líka nokkuð ömggar tekjur í aðra hönd. Ungmennafélagar eru hvattir til að kynna sér fróðlegt yfirlit um þessa starf- semi hjá aðilum innan UMFÍ á bls. 21— 25 í þessu blaði. Guðmundur til Skarphéðins HSK hefur nú tryggt sér Guðmund Guðmundsson sem fastan starfsmann næsta árið a. m. k. Guðmundur var í fyrrasumar framkvæmdastjóri HSH og þar áður hjá UMSK. Hann lýkur kenn- araprófi nú í vor. Skarphéðinsmenn hrósa happi yfir að hafa fengið Guðmund sem framkvæmdastjóra, enda er hann einn af reyndustu og traustustu starfsmönnum hrevfingarinnar. Viöavangshlaup UMSK 197.3 Víðavangshlaup UMSK 1973 var hald- ið i Mosfellssveit miðvikudaginn 28. marz kl. 18.30. í flokki karla sigraði Ágúst Ásgeirsson ÍR á 5:27,4 mín, annar varð Einar Ósk- arsson Breiðabliki eftir harða baráttu við Ágúst Ásgeirsson, tími Einars var 5:27,8 mín. Þriðji varð Erlingur Þor- steinsson Stjörnunni á 5:35,7 mín. í kvennaflokki sigraði Ragnhildur Pálsdóttir Stjörnunni, hljóp hún á 4:36,8 mín, önnur varð Lynn Ward Englandi á 4:39,9 og þriðja Sólveig Pálsdóttir Stjörn- unni, hljóp á 5:36,0. Drengir yngri en 12 ára hlupu með konum. Fyrstur varð Kristján Kárason Aftureldingu, hljóp á 5:02,5 min. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.