Skinfaxi - 01.02.1973, Page 9
ég lagt mikla áherzlu á að sérstakt skóla-
mót yrði haldið auk íslandsmótsins.
— Er blak heppileg almennings-
íþrótt?
— Já, það hefur ótvírætt sannast í
öllum heimshlutum. Blak getur fólk á
öllum aldri leikið, jafnt konur sem karl-
ar. Þetta er líka sú íþrótt þar sem auð-
veldast er að mynda blönduð lið karla
og kvenna. Þótt blak geti verið hörku-
keppnisíþrótt þá er hún ekki síður
skemmtileg hressingaríþrótt. Það gerist
stundum ýmislget spaugilegt í leiknum
og fólk skemmtir sér vel.
— Þurfa aðstæður ekki að vera marg-
brotnar til blakiðkana?
— Löglegur keppnisvölur er 9x18 m.
og 7m. lofthæð, en auðvitað er hægt að
leika blak úti við, það er mjög algengt
erlendis og líka hægt að gera það hér
á landi a. m. k. á sumrin. Á nýja íþrótta-
svæðinu í Laugardalnum verður m. a.
malbikaður völlur fyrir blak. Þessi litla
stærð leikvallar gerir það m. a. kleift
að leika blak í ílestum félagsheimilum,
enda er það víða gert. Þetta er því upp-
Iögð íþrótt fyrir fólk úti á lanclsbyggð-
inni, hka þar sem engin íþróttahús eru
Boltanum blakað yfir netið í leik Umf. Hvat-
ar og ÍMA.
fyrir hendi. Það má geta þess að Hvann-
eyringar hafa tekið þátt í Islandsmótinu
s. I. þrjú ár og staðið sig vel, en þeirra
æfingavöllur er aðeins 7x14 m.
— Er það rétt að gömlu íþróttafé-
lögin í Reykjavík sinni lítið þessari
íþrótt?
Sigurvegarar í
stúlknaflokki á skóla-
móti BLÍ 1973. Lið
KHÍ. Frá vinstri:
Laufey Eiríksdóttir,
Ragna Þórhallsdóttir,
Ólöf Sigurðardóttir,
Erna Kristjánsdóttir,
Asta Sæmundsdóttir
og Agnes Bragadóttir.
A myndina vantar
Auði Harðardóttur.
SKINFAXI
9