Skinfaxi - 01.02.1973, Síða 18
Einn ágætasti merkisberi íslenzkrar
íþróttahreyfingar, Frímann Helgason,
lézt 2. desember s. 1. Fráfall hans bar
brátt að, og fréttin um það var reiðar-
slag fyrir alla, sem hann þekktu. Það er
erfitt að sætta sig við að slíkur maður
skuli hverfa af vettvangi okkar um aldur
fram. Frímann á óvenju afkastamikinn
og farsælan íþróttaferil að baki. Um
langt árabil var hann einn af fræknustu
knattspyrnumönnum landsins og mjög
fjölhæfur íþróttamaður. Hann var lengi
í stjóm knatjtspyrnufélagsins Vals og
formaður þess í mörg ár, og í 15 ár sat
hann í stjóm ÍSÍ. Þá má ekki gleyma
giftudrjúgu starfi hans meðal ungling-
anna í Val, en slíkt starf er sjaldan í há-
vegum haft. Þá er enn ótalinn sá þáttur
í íþróttastarfi Frímanns sem lengst mun
halda nafni hans á lofti, en það em í-
þróttaritstörf hans. Hann er fyrsti mað-
urinn sem ritar reglulega um íþróttir í
blöð á íslandi, og því starfi hélt hann á-
fram í 30 ár án hvíldar. Þetta var alltaf
aukastarfi, sem hann vann utan langs
vinnutíma í daglegu brauðstriti.
Það var hinn 20. nóvember 1938 að
fyrsta íþróttasíðan birtist í Þjóðviljan-
um undir stjórn Frímanns. Lengst af
vann hann það starf einn, en þegar blað-
ið stækkaði og íþróttirnar efldust unnu
aðrir í samvinnu við hann að þessu
verki. Undirritaður starfaði með honum
í nokkur ár, og þegar Frímann hafði
verið íþróttafréttamaður í aldarfjórð-
ung, átti ég við hann viðtal sem birtist
í Þjóðviljanum 8. des. 1963. Ég hafði
alltaf ímyndað mér að Frímann hefði
verið íþróttamaður frá blautu barns-
beini, en það kom á daginn að hann var
kominn yfir tvítugt þegar hann hóf í-
þróttaæfingar. Því ollu atvinnuaðstæður
hans, lífsbaráttan sjálf. Kornungur gerð-
ist hann sjómaður á vélbátum í Vest-
mannaeyjum og síðar á togurum. I tog-
araverkfallinu 1929 réði hann sig í vinnu
í landi, og skömmu síðar hófst hinn
frægi knattspymuferill lians í Val, en
hann Iék með meistaraflokki félagsins til
39 ára aldurs.
Frímann Helgason fæddist að Litlu-
Heiði í Mýrdal árið 1907 og á upp-
vaxtarárum sínum í Mýrdalnum lærði
hann að synda í Dyrhólaósi. Sundíþrótt-
in átti eftir að bjarga lífi hans, því hann
var einn þeirra 10 sem komust af er tog-
18
SKINFAXI