Skinfaxi - 01.04.1973, Page 7
hver afrek hafa ekki komizt á skrá. Þeg-
ar árið er svo athugað í heild verður
jafnvel 10 fyrstu í hverri grein veitt við-
Urkenning. í þessari keppni má líka
synda í hinum litlu sundlaugum sem svo
Vlða eru á landinu.
Annað atriði er það að skipta árinu í
‘vo sjálfstæð keppnistímabijj, og ætti
það líka að vera hagkvæmt fyrir þá sem
ei'u mjög bundnir t. d. vegna atvinnu
einhvem hluta ársins. Annað tímabilið
nær yfir vetrarmánuðina og lýkur með
bikarkeppni SSÍ snemma vors. Hitt tíma-
i'ilið er á sumrin, og Meistaramót ís-
lands er venjulega seint í júlí og ungl-
nigameistaramótið í byrjun september.
Erlend stórmót eru líka flest á þessu
bmaskeiði, en þó var t. d. síðasta lands-
keppni okkar við íra um miðjan vetur.
— Eru ekki mörg önnur stórverkefni
hjá SSÍ í ár?
— Við háðum landskeppni við íra í
Dublin í vetur og unnum þar kærkominn
Slgur. Við hyggjumst taka þátt í keppni
h landa eins og í fyrra, og Norðurlanda-
u^eistaramót er í sumar. Þá verður
Evrópumeistaramót fyrir unglinga,
fasdda 1958 og síðar, og hefur SSÍ sett
lagmarksskilyrði fyrir þátttökurétti. Loks
^aa geta þess að heimsmeistaramót í
sundi verður í fyrsta sinn lialdið í ár, og
^er það fram í Belgrad 1. september.
Um páskana fengum við hingað lands-
þjálfara Skotlands í sundi, og dvaldi
hann hér í 10 daga. Hann þjálfaði lands-
Uðið og hélt fræðslufundi með sund-
kennurunum, þjálfurum og forystu-
oúirnnim. Þetta var mjög árangursríkt,
°g Sundsambandið hefur fullan liug á að
efna til fleiri slíkra heimsókna í fram-
fíðinni.
— Er fleira sem hægt er að gera til
að létta undir starf sundþjálfaranna?
— SSI hefur fengið nýja og mjög
góða kvikmynd um sundstíl alls fræg-
asta sundfólks heimsins í dag. Myndin
er tekin af keppendum á Olympíuleik-
unum í Múnchen í fyrra og líka eftir þá.
Myndin er tekin bæði undir og yfir
vatnsborðinu og sýnir sundstíl bæði með
eðlilegum hraða og líka hægt. Nokkrir
færustu sundþjálfarar heims ræða síðan
saman um sundstílinn og tæknina hjá
afreksfólkinu og segja álit sitt á þeim
atriðum. Þessa frábæru kvikmynd lánar
SSÍ út, og eru þjálfarar og félög hvött
til að notfæra sér það.
— Að lokum, — hvað olli hinum
stóra sigri íslendinga í Norrænu sund-
keppninni, hverju spáirðu um næstu
keppni?
— Norræna sundkeppnin í fvrra hitti
beint í mark. Fyrirkomulagið virtist
falla íslendingum vel í geð; þeir brugðu
skjótt við og höfðu gott úthald. Á Norð-
urlandameistaramótinu í sumar verður
þingað um næstu keppni, sem verður
1975, og við vitum að Norðmenn ætla
að koma með tillögur um breytta til-
högun á keppninni. En þó að einhverjar
breytingar verði gerðar, er ég ekki í
neinum vafa um að sigurinn verður einn-
ig okkar í næstu keppni.
skinfaxi
7