Skinfaxi - 01.04.1973, Side 9
Eiðum. Ég keppti svo í síðasta landsmóti
á Sauðárkróki ásamt hópi ungs sund-
fólks frá Akranesi.
— Er mikill sundáhugi á Akranesi?
— Já, þar hefur verið æft vel þrátt
fyrir erfiðar aðstæður, aðeins 12V2 metra
laug, en við höfum haft góða þjálfara.
Við urðum t. d. í öðm sæti í bikarkeppni
SSI í vetur, næst á eftir Sundfélaginu
Ægi i Reykjavík.
— Er ekki von til þess að sundmann-
virki verði betrumbætt hjá ykkur á
næstunni?
— Vonandi verður það. Kannski
verður næsta landsmót UMFÍ til að ýta
á slíkar framkvæmdir, úr því að það
verður einmitt haldið á Akranesi.
— Að lokum ein klassísk spurning,
Guðjón: Þar sem þú hefur tekið þátt í
mörgum stómiótum og öllum lands-
keppnum íslands síðan 1968. Ilvað er nú
eftirminnilegast af þessu öllu?
•— Það eru tvímælalaust Olympíuleik-
arnir í Múnchen. Það var stórkostlegt
aS fá að vera með í þeirri keppni og
fylgjast með öllum sterkustu sundstjöm-
um iieimsins.
íþróttafréttamenn kusu Guðjón íþróttamann
ársins 1972. Hér er Guðjón með hinn veg-
lega verðlaunagrip sem fylgir heiðurstitl-
inum.
Guðjón tekur við
verölaunum á
Landsmóti UMFÍ
að Eiðum 1968,
þá aðeins 15 ára
gamall.
— Nokkuð sérstakt sem þú vilt leggja
áherzlu á í lokin?
— Já, ég vil gjaman nota tækifærið
til að kcma á framfæri þakklæti til
þjálfara minna, Ilelga Hannessonar á
Akranesi og Guðmundar Harðarsonar,
sem ég æfi hjá hér í Reykjavík. Það vill
oft gleymast þegar fagnað er yfir af-
rekum, að þau væru óhugsandi án
mannanna, sem standa á bak við og eru
óþreytandi við að kenna manni og
hjálpa.
SKINFAXI
9