Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1973, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.04.1973, Blaðsíða 10
Ný og knýjandi verkefni ungs fólks í landgræðslu Rætt við Hauk Hafstað, framkvæmdastjóra Landverndar Haukur Hafstað tók við starfi fram- kvæmdastjóra Landvemdar, land- græðslu- og náttúruvemdarsamtaka Is- lands — 1. október s. 1. Skinfaxi gekk nýverið á fund Hauks og innti hann frétta af Landvernd og starfi samtak- anna. — Hvernig gengur ykkur að afla fjár til starfsins og að fá fólk til að vinna að landgræðslunni? — Það gengur vel. Landvernd er fyrst og fremst samtök almennings, og mark- mið samtakanna varðandi gróðurvernd Haukur Hafstað Ingvi iHwNtcinfiwm Gróðurvemd Landvernd annast einnig út- gáfustarfsemi. „Gróðurvernd" eftir Ingva Þorsteinsson er nýjasta rit sam- takanna. er að fá almenning til virkra starfa í landgræðslunni. Þetta hefur tekizt og meira að segja tekizt veh Á s. 1. ári voru veittar þrjár milljónir króna af opin- beru Jandgræðslufé til kaupa á fræi og áburði á vegum Landverndar. Vegna starfs Landverndar bættust svo 2 millj- ónir króna við frá bæjar- sveita- og sýslu- félögum. Þetta fé fæst í landgræðslustarf almennings fyrir atbeina Landverndar. Við þetta bætist svo allt það verðmæti sem felst í sjálfboðastarfi almennings við dreifingu á fræi og áburði. 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.