Skinfaxi - 01.04.1973, Síða 14
Hallfreður Örn Eiríksson:
UM SÖFNUN ÞJÓÐSAGNA
OG ÞJÓÐKVÆÐA
9
„Kerling ein er hjá mér, margkunn-
andi, en flest sem hún kann er alkunn-
ugt og með nýju bragði.“
Þessi klausa úr rúmlega aldargömlu
bréfi síra Björns Halldórssonar í Lauf-
ási til Jóns Ámasonar þjóðsagnasafnara
kemur mér stundum í hug, þegar menn
reyna sem ákafast að fullvissa sig um, að
það sem þeir kunna, sé á allra vömm,
og þess vegna sé ekki ómaksins vert
að varðveita það. Mér dettur þetta í
hug vegna þess, að þetta er ekki í eina
skiptið sem þessi rök hafa verið notuð
gegn skráningu jijóðsagna, ævintýra,
þjóðkvæða, vísna alls kyns, gútna, máls-
hátta, bæna og annars þess háttar. Fyrir
bragðið er oft ekkert vitað, hvað oftast
gekk í munnmælum. En fleiri sögur en
sögur kerlingarinnar norðlenzku hurfu
óskróðar úr munnmælum. Frægar sagn-
ir merkilegra fornþjóða, sem minnzt er
á í fjölda rita, em nú ekki þekktar nema
í brotabrotum eða þá í brotum þegar
bezt lætur, vegna þess að þær voru al-
þekktar. Svo voru aðrar, sem þóttu of
nýjar til þess að setja þær á blað.
Það var sumarið 1964, að söfnun
munnmæla í bundnu máli og óbundnu
og þjóðlaga hófst á vegum Handrita-
stofnunar Islands nú Stofnun Árna
Magnússonar á íslandi. Þessi söfnun
hefur orðið árangursríkari en nokkur
þorði að vona í upphafi, „en seint fyllist
sálin prestanna", eins og þar stendur. >
Svo líður tíminn líka ákaflega hratt, og
áður en varir er orðið um seinan að safna
öllum þessum fróðleik og allri þessari
skemmtan, sem var forfeðrum okkar til
svo mikils menntunar- og ánægjuauka.
Þess vegna hef ég ástundað það að ná
til sem flestra manna, sem líklegt er að
kunni eitthvað af þessu tagi, hversu lít-
ilfjörlegt og a'gengt, sem mönnum kann
að finnast það. Eg geri þetta í |)eirri
rökstuddu vissu, að þegar tímar líða
fram, muni allt þetta þykja enn merki-
legra en nú. Ævintýrin, sem Ámi Magn-
ússon, handritasafnarinn heimsfrægi,
lét hripa upp eftir gömlum kerlingum
þykja nú ómetanleg. En það var hann
einn og enginn annar, sem virti þau
þess viðlits að bjarga þeim frá glötun.
14
SKINFAXi