Skinfaxi - 01.04.1973, Page 19
AUKIÐ STARF ÍÞRÓTTASKÓLA
SIGURÐAR Á LEIRÁ
íþróttaskóli Sigurðar R. Guðmunds-
sonar að Leirá í Borgarfirði starfar í
sumar sem endranær. í sumar verður í
fyrsta sinn starfrækt við skólann lýðskóla-
deild, þar sem ungu fólki gefst kostur
á menntun í félagsleiðsögn og íþrótta-
kennslu.
Iþrótaskóli Sigurðar á Leirá hóf starf
sumarið 1968. Skólinn hefur verið ætl-
aður stúlkum og drengjum á aldrinum
9-14 ára, en mun nú, eins og áður segir,
einnig mennta fólk til félagslegrar for-
ystu og leiðbeinendastarfa í íþrótum. í
viðtali við Skinfaxa sagði Sigurður að
lýðskóladeildin væri stofnuð til að bæta
ur brýnni þörf á félagsleiðtogum og í-
þróttaleiðbeinendum. Við námið verða
notuð kennslugögn þau sem Æskulýðs-
ráð ríkisins hefur samþykkt. Meðal
þeirra sem flytja erindi á ráðstefnunni
eru Valdimar Örnólfsson, Reynir Karls-
son, Hanens Þ. Sigurðsson og Þorsteinn
Einarsson. Nemendur munu kynnast
starfsemi UMFÍ m. a. með því að heim-
sækja sambandsbing UMFÍ í Haukadal,
°g fulltrúi frá ISI mun kynna starf þeirra
samtaka. Þá fá þessir nemendur í lýð-
skóladeildinni ágæta verklega þjálfun
V]Ú að leiðbeina unglingum sem eru í
ungmennadeild skólans. Níu nemendur
verða í lýðskóladeildinni, flestir úr ung-
uierm af él agsh rey f i n gunni. Héraðssam-
bönd og félög, æskulýðsráð og bæjarfé-
lög hafa styrkt langflesta nemendur til
námsins, og segir það sitt um það hversu
þörfin er brýn fyrir forystufólk og leið-
beinendur á þessu sviði. Hér er um að
ræða grunnmenntun, sem ungmenna- og
íþróttahreyfingin þurfa nauðsynlega að
byggja ofan á, sagði Sigurður.
Fullbókað er í öll ungmennanám-
skeiðin þá tvo mánuði sem þau starfa,
eins og jafnan undanfarin ár. í ung-
mennadeild eru kenndar frjálsar íþrótt-
ir, knattleikir og sund. Lögð er áherzla á
félagsstörf, kenndur er dans og söngur,
og kvöldvökur eru á hverju kvöldi.
Leirárskóli í Borgarfirði.
SKINFAXI
19