Skinfaxi - 01.04.1973, Blaðsíða 20
íþróttir á villigötum:
ÖRVUNARLYFIN
— óhugnanlegur fylgifiskur afreksiþrótta
Dauðsföll í íþróttakeppni af völdum
örvunarlyfja hafa varpað skuggum á al-
þjóðlega íþróttakeppni um langt skeið
en aldrei í jafn ríkum mæli og á síðustu
árum. Vegna aukinnar tækni er nú hægt
að kanna slíka ólöglega notkun örvunar-
lyfja miklu betur en áður. Margir af
þeim se msvíkja lit í keppni, hafa verið
afhjúpaðir, en þó aðeins tíundi hver
keppnismaður af slíku tagi. Eins og gef-
ur að skilja, er örvunarlyfjanotkun lang
mest meðal atvinnu-íþróttamanna, en
áhugamenn hafa þó ekki hreinan skjöld
heldur. Á Olympíuleikunum í Múnchen
s. 1. sumar varð Bandaríkjamaðurinn
Rick Demont að skila aftur gullmedalí-
unni sem hann fékk fyrir sigur í 400 m.
skriðsundi. Þessi 16 ára gamli piltur
brast í grát, en hann reyndist hafa neytt
efnisins „ephedrin". Sömu leiðina fóru
Simpson rétt
áður en hann
hné dauSur niður.
silfurverðlaun judomannsns Budaa frá
Mongólíu vegna notkunar sama efnis.
35 heimsmeistaramót eru haldin í
ýmsum íþróttagreinum árlega og um 50
Evrópumeistaramót. Alls staðar verður
að vera á verði gegn örvunarlyfjunum.
Árið 1968 börðust Þjóðverjinn Elze og
Italinn Duran um Evrópumeistaratitil-
inn i hnefaleikum. Elze neytti fyrir
keppnina efnisins „pervitin", sem orr-
ustuflugmenn notuðu í heimstyrjöldinni.
Efnið kom í veg fvrir að Elze yrði var
hinn raunverulega höggþunga andstæð-
ingsins, sem greiddi honum 21 höfuð-
högg áður en yfir lauk. Afleiðingarnar:
Heilablæðing og átta dögum síðar lézt
Elze. Mikið var á sínum tíma talað og
skrifað um dauða brezka atvinnu-hjól-
reiðakappans Simpsons, en hann féll
dauður af hjólinu í hinni frægu hjól-
reiðakeppni „Tour de France“ árið 1967.
Til að létta sér erfiðið í brekkum Alpa-
fjalla drakk hann ókjör af „odrine" og
skolaði kverkamar með brennivíni á
eftir. í 50 stiga hita lauk æfi þessa fræga
hjólreiðamanns í efstu brekkunni. Sijnp-
son var annars talinn sigurstranglegastur
í keppninni, og það var líklega þess
vegna að tekin var mynd af honum
nokkrum mínútum áður en ferli hans
20
SKINFAXI