Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1973, Síða 24

Skinfaxi - 01.04.1973, Síða 24
Frá starfi ungmennafélaganna 3 opin víðavangshlaup. í \etur efndu Breiðablik i Kópavogi, Stjainan í Garðahreppi, Umf. Bessa- staðahrepps Álftanesi og Afturelding í Mosfellssveit til opinna víðavangshlaupa fyiir karla og konur eldri en 14 ára. Bieiðablik hélt Kópavogshlaup sunnu- daginn 21. janúar kl. 14,00. Keppendur voru um 10. í flokki karla sigraði Ágúst Ásgeirsson ÍR, annar vaið Einar Óskarsson eftir harða keppni við Ágúst, þriðji varð Er- lingur Þorsteinsson, Stjörnunni. Karlar hlupu um 4 km. í flokki kvenna sigraði Ragnhildur Pálsdóttir Stjörnunni en önnur varð Anna Haraldsdóttir FH. Konur hiupu um 2 km. í lok hlaupsins afhenti Þórir Hall- grímsson form. Breiðabliks verðlaun. Ágúst Ásgeirsson hlaut farandbikar, sem Samvinnutryggingar gáfu, en Ragnhild- ur Pálsdóttir hlaut bikar, sem Ingimar Jónsson gaf. Stjarnan í Gaiðahreppi og Umf. Bessa- staðahrepps Álftanesi gengust fyrir Bessastaðahlaupi á Álftanesi sunnudag- inn 11. febrúar kl. 14,00. Keppendur voru alls 20, 14 karlar og 6 konur. Sigurvegari í karlaflokki varð Ágúst Ásgeirsson ÍR, annar varð Einar Óskars- son og þriðji Júlíus Hjör’eifsson ÍR. Sigurvegari í kvennaflokki varð Ragn- hildur Pálsdóttir Stjö.nunni, önnur Anna Haraldsdóttir FH og þriðja varð Bjarney Árnadóttir ÍR. í lok hlaupsins afhenti Örn Eiðsson formaður FRÍ verðlaun. Hlaut Ágúst veg- legan bikar, sem Sportval gaf, Ragnhild- ur hlaut bikar gefinn af Aski, einnig hlutu þeir sem voru í 1., 2. og 3. sæti litla bikara til minja um hlaupið. Afturelding í Mosfellssveit endurvakti Álafosshlaup þann 18. marz 1973. Nú var hlaupi frá vegamótum Úlfarfellsvegar og Vesturlandsvegar upp fyrir Úlfarsfell að Álafossi. Keppendur voru alls 19, 14 karlar og 5 konur. Voru þar samankomn- ir flestir beztu langhlauparar landsins auk gests frá Englandi, Lynn Ward. í karlaflokki sigraði Ágúst Ásgeirsson ÍR með miklum yfirburðum ,annar varð Jón H. Sigurðsson HSK og þriðji varð Einar Óskarsson Breiðabliki. í kvenaflokki varð fyrst Lynn Ward Engiandi, önnur Ragnhildur Pálsdóttir Stjörnunni, þriðja Lilja Guðmundsdóttir ÍR og fjórða Anna Haraldsdóttir FH. Karlar hlupu um 6 km, en konur um 3 km. Að hlaupinu loknu afhenti Pétur Pét- ursson forstjóri Álafoss h. f. verðlaun, cem Álafoss gaf. Sigurvegarar hlutu far- andbikar, þ. e. Ágúst Ásgeirsson og Ragn- hildur Pálsdóttir. Lynn Ward keppti sem ,> Ágúst Ásgeirsron sigrar í harðri baráttu við Einar Óskarsson á endasprettinum. 24 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.