Skinfaxi - 01.02.1975, Blaðsíða 8
Japanska stúlkan Mayumi Aoki (t. h.) sigraöi
í 100 m. flugsundi á síðustu olympíuleikum.
Árið eftir tapaði hún fyrir Kornelíu Ender,
Austur-Þýskalandi (t. v.).
blaðaviðtali nýlega að í Japan væru 1500
æfingalaugar, þar af 5 prósent yfirbyggð-
ar laugar. Japanir leggja nú áherslu á
unglingaþjálfunina og vonast til að geta
komist aftur í röð fremstu sundþjóða.
Þess má geta að enginn Norðurlanda-
maður er á heimsskránni í fyrra. Þar er
heldur enginn maður frá stórum heims-
hlutum.
Sökkva þeir svörtu?
Sumir hafa furðað sig á því hversu
þeldökkt fólk lætur lítið að sér kveða í
sundíþróttinni á alþjóðamælikvarða, eins
og það er þó liðtækt í flestum öðrum
greinum. Á síðustu olympíuleikum komst
aðeins einn þeldökkur keppandi í úrslit.
Hann var frá Trinidad og kom síðastur
í mark. Frá Afríku var ekki einn einasti
keppandi í sundi. Sumir hafa jafnvel
fullyrt að negrar geti ekki svnt, þeir
sökkvi eins og steinar. Þeir hafi miklu
sverari bein en hvítir menn og séu því
miklu þyngri í vatni. Breski landsþjálfar-
inn David Heller segir að negrar sýnist
vera miklu þyngri í vatninu. Þeir geti
lært réttar hrevfingar, „en þeir virðast
sökkva“ segir hann. I Bretlandi býr mikill
fjöldi af þeldökku fólki, og í breskum
landsliðum í flestum íþróttagreinum er
þeldökkt fólk nema í sundi. Heller seg-
ist aldrei hafa fengið þeldökkt fólk til
landsliðsæfinga. Cris Maloney, aðalþjálf-
ari við íþróttamiðstöðina í Gloucester,
segist kenna þar bömum úr öllum heims-
homum að synda. Það geti allir lært að
svnda nema Afríkumenn. „Þeir virðast
ekki liafa sömu tilfinningu fyrir vatni
og aðrir. Beinagrind þeirra virðist vera
þyngri, eðlisþyngd þeirra meiri. og þeir
virðast sneyddir þeim náttúruhæfilekum
að fljóta. Þetta er ekki vísindaleg stað-
revnd, heldur aðeins niðurstaðan af
reynslu minni og annarra kennara hér“,
segir Maloney. Maloney seeir meira að
segja sögu af einum þeldökkum pilti,
sem var svo þungur í vatni að hann gat
gengið þvert yfir botninn í dýfingalaug-
inni sem er um 4 metra djúp.
Bandarískur prófessor kannaði flot-
hæfileika allstórs hóps negra árið 1963.
Niðurstaðan var sú að 73 af hundraði
hefðu ekki floteiginleika. í Anstev-
íþróttaskólanum í London var gerð svip-
8
SKINFAXI