Skinfaxi - 01.02.1975, Blaðsíða 9
uð könnun með fólk frá eyjum karabíska
hafsins. Flolhæfileikar voru mjög litlir
einkum meðal karlmanna.
Þeir synda samt
En ekki eru allir sammála þessu.
Iíamilton Bland sem þjálfaði breska
olympíuliðið 1972, er nýkominn úr þjálf-
unarferð til Nígeríu. Hann segir að eng-
in ástæða sé til að ætla annað en að
afríkufólk geti skákað hverjum sem er í
sundi ekki síður en í frjálsum íþróttum.
Sundmeistaramót Afríku var nýlega hald-
ið í Kaíró, og reyndust Nígeríumenn sig-
ursælastir. Engin sundlaug var til í
Nígeríu árið 1956, en eftir að landið
hlaut sjálfstæði hafa verið byggðar þar
sjö 50 m. laugar og margar smærri.
Bland segir að þeldökkt fólk hafi til
þessa lítið látið að sér kveða í sundi af
félagslegum og efnahagslegum ástæðum.
Sund eigi sér engar erfðavenjur meðal
negra, þeir hafi ekki haft efni á að iðka
sund, hvorki í heimalöndum né í Bret-
landi, og einnig hafi mataræði þeirra ekki
verið heppilegt fyrir sund.
„Sumir segja að negrar séu klumpar í
vatni vegna þess að þeir hafi minni lík-
amsfitu og meiri vöðva en vesturlanda-
búar, en í rauninni sýnast þeir aðeins
hafa meiri vöðva vegna þess að hörunds-
litur þeirra leiðir vöðvabygginguna svo
vel í ljós. Floteiginleikinn skapast aðeins
af tvennu: líkamsfitu og lofti í lungum.
Ég hef fengið læknisfræðilega sönnun
fyrir því að afríkumenn hafa ekki minna
lungnaþol en evrópubúar, heldur líklega
meira vegna minni loftmengunar. Beina-
bygging þeirra er líka nákvæmlega sú
sama og hvítra manna", segir Bland.
UMSS heiðrar
Guðjón Ing'mundarson
Á ársþingi Ungmennasambands Skaga-
fjarðar sl. vor var Guðjón Ingimundarson
íþróttakennari á Sauðárkróki kjörinn
heiðursfélagi sambandsins. Guðjón lét af
störfum sem formaður UMSS árið 1973
eftir að hafa gegnt því starfi af einstökum
áhuga og samviskusemi um 29 ára skeið.
Á formannaráðstefnu UMSS fimmtu-
Guðjón
Ingimundarson
daginn 31. okt. afhenti svo formaður
sambandsins, Stefán Pedersen, Guðjóni
vandað gullúr að gjöf frá öllum ung-
mennafélögum í Skagafirði.
Með þessu vilja ungmennafélagar
þakka Guðjóni farsæla forystu um ára-
tuga skeið og ómetanlegan þátt lians í
því æskulýðsstarfi sem unnið hefur verið
á sambandssvæðinu. Á Sauðárkróki er nú
einhver glæsilegasta íþróttaaðstaða sem
þekkisl á landinu. Þeirri uppbyggingu
hefur Guðjón stjórnað frá byrjun og
áræði og gerir enn. Það vilja ungmenna-
félagar einnig þakka.
SKINFAXI
9