Skinfaxi - 01.02.1975, Blaðsíða 18
3. Héraðsmót HSH að Breiðabliki 25.
ágúst.
Auk þessa móta voru þrjú æfingamót
á Breiðabliki og Ólafsvík. HSH átti þátt-
takendur á eftirtöldum mótum utan
héraðs:
1. íslandsmót yngri flokka innanhúss í
Hafnarfirði 2. febrúar.
2. Meistaramót íslands, Laugardalsvell-
inum, Reykjavík 21.—23. júlí.
3. Islandsmót yngri aldursflokka, Sel-
fossi og Reykjavík 10.—11. ágúst.
4. Bikarkeppni FRI II. deild, Akurevri
17. ágúst.
5. Frjálsíþróttakeppni HSH og HSK á
Selfossi 15. september.
En sá atburður sem hæst ber hjá frjáls-
íþróttafólkinu er ferð þess til Noregs á
sumrinu.
— Fyrsta utanlandsferð HSH?
— Jú, það er rétt. Þessi hugmynd kom
fyrst fram í stjórn HSH 1973 og var til-
gangurinn að finna leið sem verkaði
hvetjandi á frjálsíþróttafólk HSH. UMFÍ
annaðist allan undirbúning að Noregs-
ferðinni. 18 manna flokkur frjálsíþrótca-
fólks fór svo til Oslo og Bergen í Noregi
um mánaðarmótin ágúst-september 1974.
íþróttadeildin Gular innan íþróttafélags-
ins Ervingen tók á móti hópnum og sá
um alla fyrirgreiðslu sem var til fvrir-
myndar í alla staði. Ásta Borgen, ágætur
íþróttafrömuður, sá um að koma okkur
frá Osló til fvrirhugaðs samastaðar. sem
var fjallakofi í eigu unginennafélags í
Osló. Þar dvöklum við í fjóra daga og
auk þess að skoða borgina og njóta um-
hverfisins tókum við þátt í tveim frjáls-
íþróttamótum á hinum fræga Bislet og
nutum auk þess þeirrar sérstöku velvildar
að fá að halda þar innanfélagsmót síð-
asta daginn.
Snemma á mánudagsmorgni héldum
við síðan til Bergen og vorum við þá
komin til upprunalegs áfangastaðar okk-
ar. Er skemmst frá því að segja að í
Bergen nutum við framúrskarandi gest-
risni og fyrirgreiðslu af hálfu ungmenna-
félaga þar, en okkur var búinn samastað-
ur í fjallakofa félagsins og var dekrað við
okkur á allan hátt.
í Bergen kepptum við einnig á tveim-
ur mótum og fengum aðstöðu á íþrótta-
völlunum til æfinga eftir eigin geðþótta.
Of langt vrði upp að telja árangur
hvers og eins í öllum þeim mótum sem
við tókum þátt í en þeir sem settu HSH
met í ferðinni voru þessi:
Vilborg Jónsdóttir
200 m. hlaup 28.1 sek
400 m. hlaup 65.3 sek.
Petrína Sigurðardóttir
600 m. hlaup 1.52.7 mín.
800 m. hlaup 2.34.1 mín.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Langstökk 4.95 metra
Fimmtaþraut 2.448 stig
— Þú varst fararstjóri í þessari ferð?
— Já og nei, svona ferð getur aldrei
tekist vel nema með samstarfi og viJja
allra í hópnum og það ríkti svo sann-
arlega skemmtilegur andi í ferðinni. Ég
vil nota þetta tækifæri til að þakka farar-
stjóra okkar Friðriki Þór Óskarssvni alveg
sérstaklega fvrir hans framlag til ferð-
arinnar.
— Svo við snúum okkur að öðrum
þáttum starfseminnar. Hvað um ung-
mennabúðirnar í Laugagerðisskóla á s.l.
sumri?
18
SKINFAXI