Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1975, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.1975, Blaðsíða 13
verður hörðust keppni í sundi á iands- mótinu? — Tvímælalaust milli HSK, Umf. Skipaskaga á Akranesi, og UMSK sem nú á mjög góðu sundfólki á að skipa úr Umf. Breiðabliki í Kópavogi. Fleiri sam- bönd og félög kunna einnig að blanda sér í baráttuna eins og Umf. Keflavík- ur o. fl. Elínborg Gunnarsdóltir er 16 ára sund- kona frá Umf. Selfoss. Hún er í fremstu röð sundkvenna innan HSK og býr sig nú af kappi undir baráttuna á landsmótinu í sumar. Elínborg er fjölhæf sundkona, en fyrst og fremst leggur hún stund á bringusund, og eru bestu árangrar henn- ar í bringusundsgreinum þessir: 100 m. í laugstærð 16 2/3 m. 1.23.8 mín. 200 m. í laugstærð 16 2/3 m. 2.59.0 mín. (HSK-met) 400 m. í laugstærð 25 m. 6.24.6 mín. (HSK-met) Tíu ára gömul geklc Elínborg í Umf. Selfoss og hóf æfingar í sundi. fyrst í stað einkum á vetrum en síðar árlangt eftir því sem árangurinn óx. — Eh'nborg, hvað eru margir félagar í sunddeild Umf. Selfoss í dag. og hver þjálfar vkkur í sundinu? — I deildinni eru alls 160 félagar, en ég hugsa að kringum 60 þeirra æfi nokk- uð reglulega með keppni í huga. Þórður Gunnarsson, íþróttakennari, þekktur sund- og frjálsíþróttamaður úr Umf. Sel- foss, er þjálfari okkar, og er hann aldeilis frábær. Eg hef ekki áður haft eins góð- an þjálfara og áhugasaman fyrir vel- gengni okkar, og er ég viss um að hann Elínborg Gunnarsdóttir á eftir að vinna gott starf fvrir sund- íþróttina hér. — Hvað finnst þér um samæfingarnar innan HSK? — Þær eru ágætar, en mættu ef til vill vera oftar, þær auka á kynni milli okkar sem væntanlega tökum þátt í sund- keppninni fyrir HSK á landsmótinu. — Hvemig er undirbúningnum að öðru leyti hagað fyrir landsmótið? — Við munum reyna að taka þátt í sem flestum sundmótum sem völ er á fram að landsmóti, til þess að öðlast meiri keppnisreynslu, einkum fyrir nýliðana. í dag er þjálfarinn okkar t. d. með keppnis- hóp í Reykjavík á sundmóti sem þar er haldið á vegum sundfélagsins Ægis. — Hvað viltu segja að lokum Elín- borg? — Mér finnst að blöð, útvarp og sjón- varp gætu sagt meira og flutt fréttir frá sundinu heldur en gert er, það er að- eins ef einhver setur met og þá helst í Reykjavík, að frá því er sagt. Eg er ánægð með frásagnir Skinfaxa af sund- íþróttinni, og vona að þið haldið áfram að segja fréttir af erlendu og innlendu sundfólki, og árangri þess. SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.