Skinfaxi - 01.10.1975, Side 3
-o
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVI. árgangur — 4.-5. hefti 1975 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson. — Út koma 6 hefti á ári hverju.
AUKIN SAMSKIPTI
Á undanförnum árum hafa ferðalög
íþróttafólks og annarra félagshópa í
frjálsu æskulýðsstarfi farið mjög vaxandi,
bæði hér innan lands og til útlanda.
Ástæðan er fyrst og fremst stórbættar
samgöngur og hagkvæmari ferðamáti en
áður var t. d. með flugvélum, og síðast
en ekki síst aukið félagsstarf og vaxandi
áhugi æskufólks á slíku samstarfi.
Kostnaðurinn vegna íþróttalegu sam-
skiptanna er líka orðinn geigvænlegur,
og er í dag langhæsti útgjaldaliður f jölda
félaga og héraðssamband innan UMFI.
Fyrirsjáanlegt er ef ekki verður með ein-
hverjum ráðum hægt að draga úr þessum
kostnaði eða lækka hann verulega, þá
dregur úr þessum samskiptum á næstu
árum. Framkvæmdastjórn UMFÍ hefur
fyrir alllöngu síðan gert sér ljóst hvert
stefndi í þessum efnum, ekki síst þar sem
það hefur verið eitt megin áhugamál
hennar að auka þessi samskipti, bæði á
innlendum og erlendum vettvangi, t. d.
við systursamtök okkar á Norðurlönd-
unum.
Með hliðsjón af framansögðu hefur
framkvæmdastjórn UMFÍ átt viðræður
við ýmsa aðila sem að ferða- og flutn-
ingamálum vinna og kannað ýmsar til-
tækar leiðir sem orðið gætu til þess að
lækka þennan kostnað, jafnframt því sem
öll samskipti af þessu tagi yrðu efld
eftir föngum.
Þá má geta þess að viðræður eru hafn-
ar milli forráðamanna UMFÍ og ÍSÍ um
hugsanlegar sameiginlegar aðgerðir í
þessum efnum, og samkomulag hefur
náðst um samvinnu á þessu sviði. Sam-
böndin hafa þegar ákveðið að fram-
kvæma allsherjar könnun á flutningaþörf
íþróttahrevfingarinnar og í Ijósi þeirrar
útkomu síðan rætt um ýmsar sameigin-
legar aðgerðir sem stuðlað gætu að úr-
bótum í þessum efnum. Þessu samstarfi
milli UMFÍ og ÍSÍ ber að fagna, og er
ekki að efa, að samstillt stendur íþrótta-
hreyfingin vel að vígi til þess að fá þenn-
an kostnað lækkaðan. Það gæti þýtt stór-
aukin félags- og íþróttafélagssamskipti á
næstu ámm. H.Þ.
S K I N FAX I
3