Skinfaxi - 01.10.1975, Page 36
Landsmótin krefjast
þrotlausrar vinnu
Rætt v/ð IngóLf Steindórsson um. 15. Landsmótib
Að landmótinu loknu hittum við að
máli Ingólf Steindórsson, framkvæmda-
stjóra mótsins, og spurðum hann hvort
hann væri ánægður.
— Ég er ánægður með það að fram-
kvæmd mótsins tókst vel og allt fór sam-
kvæmt áætlun. Oll framkvæmdaatriði og
allar tímasetningar stóðust eins vel og
frekast er hægt að ætlast til á stórmóti
sem þessu. Þetta sýnir líka að undirbún-
ingur mótsins hefur verið í lagi, og þetta
er að þakka mikilli vinnu og samstilltu
átaki undirbúningsaðilanna.
— Þýðir þetta að þú sért fullkomlega
ánægður?
— Nei, það er aldrei svo að ýmislegt
hefði ekki mátt betur fara. Það olli okkur
t. d. miklum vonbrigðum að ekki skvldi
koma fleira aðkomufólk en raun bar
vitni. Ég gerði mér vonir um að gestir
yrðu álíka margir og á landsmótinu á
Laugarvatni 1965, en svo varð ekki, og
þetta þýðir að fjárhagslegur halli er á
mótinu.
— Hvað veldur því að aðsókn varð
ekki meiri?
— Ég kann ekki örugga skýringu á
því. Það er reyndar ekki hægt að segja
annað en að aðsóknin hafi verið góð —
um 10 þúsund manns —, en við höfðum
miðað undirbúning okkar við meiri
fjölda, og góða veðrið mótsdagana hefði
ekki átt að spilla fyrir. Sumir álíta að fólk
sæki síður útihátíðir séu þær haldnar í
þéttbýli. Það kann eitthvað að vera hæft
í jrví, en hins vegar er orðið erfitt að
halda slík stórmót annars sfcaðar en í
joéttbýli vegna allrar aðstöðu og þjónustu.
— Var þetta mót frábrugðið fvrri
landsmótum?
— Þetta var stærra mót en nokkru
sinni fyrr, — fleiri kep]misgreinar og
miklu fleiri þátttakendur, sem gerir fram-
kvæmdina kostnaðarsamari og tímafrek-
ari. Nú stóð mótið í fulla þrjá daga í stað
tveggja áður. Þá var núna í fyrsta sinn
erlendir sýningarflokkar sem settu
skemmtilegan svip á mótið og gerðu það
fjölbreyttara. Annars var heildarsvipur
36
S KIN FAX I