Skinfaxi - 01.10.1975, Side 45
neci, 7 ára gömul. Hún sýndi brátt ótví-
ræða hæfileika og mikinn áhuga. 10 ára
gömul var hún valin í unglingalandslið
Rúmeníu til keppni í Póllandi og sigraði.
Arið eftir sigraði hún á alþjóðlega rúm-
enska meistaramótinu, og sama árið sigr-
aði hún á alþjóðlega „Vináttu-bikarsmót-
inu“ í Austur-Þýskalandi sem áður er
getið um.
Síðan hefur stjama hennar haldið
áfram að hækka uns hún vann sinn
stærsta sigur til þessa á Evrópumeistara-
mótinu. Hver veit nema hún hefði orðið
heimsmeistari í fyrra, en hún hafði ekki
aldur til að mega keppa á mótinu. En á
Ólympíuleikunum á næsta ári verður hún
meðal þátttakenda, og margir spá henni
sigri þar. Þar verður keppnin þó áreiðan
Olga Korbut,
olympíumeistar-
inn vinsæli, sést
hér í grennd við
svifrána. Hún
varð að láta í
minni pokann
fyrir rúmensku
telpunni á Ev-r
ópumótinu.
Nadia Comaneci er mjög f jölhæf og hefur náð
ótrúlegum [tokka í gólfæfingunum þrátt fyrir
ungan aidur.
lega hörð, og fleiri en hún munu ætla
sér sigur þar. Olga Korbut er sögð ákveð-
in í að verja ól)Tnpíutitil sinn. Á þessu
hausti, nánar til tekið 17.—29. október,
verður í fyrsta sinn „Heimsbikarskeppni"
í fimleikum í London. Þar hafa aðeins
þátttökurétt 6 fyrstu í kvennaflokki og
karlaflokki úr síðustu heimsmeistara-
keppni. Nadia fær því ekki að vera með.
Olga Korbut hefur tilkvnnt að hún muni
koma fram með nýjar æfingar í öllum
greinum. Sú keppni sem allir fimleika-
unnendur bíða eftir er samt keppnin á
Ólvmpíuleikunum í Montreal 1976.
S KIN FAX 1
45