Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1975, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.10.1975, Blaðsíða 37
Þeir sem tóku við hin- um fjölmörgu sérverð- launum hampa hér sig- urlaununum. (Ljósm.: Friðþjófur). mótsins sá sami og áður. Mestu máli skipti að gestimir voru ánægðir, mótið fór fram með góðum menningarbrag og varð aðstandendum ]x:ss til sóma. — Hvað er þór minnistæðast við mót- ið? — Vinnan í kringum þetta allt er mér minnistæðust, enda fékk ég ekkert tæki- færi til að fylgjast með því sem gladdi mest augu áhorfenda. Vilji allra til að láta þetta takast vel og vinnan sem fólk lagði á sig til þess að svo mætti verða, er nokkuð sem fáir leiða hugann að. Ég vil tjá þakklæti mitt til sjálfboðaliðanna sem voru margir, bæði úr röðum USK og UMSB. Margir þeirra lögðu nótt við dag í undirbúningsvinnu, og þetta varð ó- skaplegt álag á suma. En án þessa starfs hefði mótið ekki heppnast. — Nú ert þú orðinn reynslunni ríkari. Viltu ekki ráðleggja eyfirðingum eittlivað fyrir næsta landsmót? — Ég held að það sé mikilvægt að kynna sér vel framkvæmd og starf í sam- bandi við næstu mót á undan. Af því má margt læra, það sparar tíma og fvrirhöfn og getur lækkað kostnaðarliðina. Það þarf að nýta vel þá reynslu sem fæst með hverju landsmóti sem haldið er. — Hverju spáirðu um framhald lands- mótanna? — Það hefur enn einu sinni sannast að landsmótin hafa mikið aðdráttarafl fvrir æskuna í cillum byggðarlögum. íþróttaleg og félagsleg samskipti ung- mennafélaganna sem þátt taka í lands- mótunum, eru ánægjuleg og hafa mikla félagslega þýðingu. Þetta fólk fer aftur til heimkvnna sinna og glæðir þar áhug- ann fyrir starfinu og að loknu hverju landsmóti hefst strax undirbúningur fyrir það næsta. Þannig eru landsmótin bæði hvati og ómissandi tengiliður í starfinu, og þess vegna er það öruggt að þau eiga stóru hlutverki að gegna hér eftir sem hingað til. S KIN FAXI 37

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.