Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1975, Síða 7

Skinfaxi - 01.10.1975, Síða 7
Hátíðadagskrá Svo sem venja er á landsmótum UMFÍ var sérstök hátíðardagsbrá á sunnudeg- inum, og hófst hún kl. 4 sd. Þar flutti heiðursgestur mótsins, Sigríður Thorla- cius, ávarp, og fulltrúar erlendu gest- anna afhentu gjafir til UMFI. Formaður DDGU, H. Rasmusen, flutti ávai'p. A hátíðarsamkomunni sýndu erlendu fimleikaflokkarnir og þjóðdansaflokkur- inn listir sínar, og einnig sýndi flokkur stúlkna úr Gerplu í Kópavogi fimleika og Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýndi jrjóð- dansa. Veður og aðsókn Landsmótin hafa a. m. k. sl. tíu ár ver- ið í náðinni hjá veðurguðunum, og það brást heldur ekki að þessu sinni. Veður var gott allan mótstimann, en slíkt er að sjálfsögðu mikil blessun fyrir stóra úti- hátíð sem þessa. Fyrir kepirendur og framkvæmd keppninnar er góða veðrið ómetanlegt, og áhorfendur undu sér vel í góða veðrinu. Það er sagt að það sé sjaldan logn á Skaganum, en það sann- aðist nú að víst getur það komið fvrir. Mótsgestir munu hafa verið 10—12 þúsund, og er það vissulega miklu minna en búast hefði mátt við. Miðað við að- sóknina að undanfömum mótum og mið- að við staðsetningu þessa móts á þétt- býlissvæði Suðvesturlands hlýtur þetta að vekja furðu. Að visu var þetta mikill mannfjöldi, en ungmennafélagar hefðu gjarnan viljað að fleiri hefðu getað notið þessarar góðu skemmtunar. Þátttaka Til leiks voru skráðir 1004 keppendur, og er það langmesti fjöldi sem keppt hef- ur á landsmóti. (Á 14. landsmótinu voru þeir tæplega 700). Munaði nú talsvert um fleiri flokka í knattspymu svo og blakliðin. Auk þessara keppenda vom svo hinir fjölmennu sýningarflokkar í fimleikum og þjóðdönsum, sem auðvitað teljast til þátttakenda. Ef taldir væm með þeir flokkar í knattleikjum og skák, sem féllu úr í forkeppninni, hækkar tala keppenda auðvitað verulega. Ungir sem aldnir skemmtu sér á Langasandi í góða veðrinu. Úti fyrir ströndinni voru kappsiglingabátarnir, en nú var í fyrsta sinn keppt í siglingum á landsmóti UMFÍ. (Ljósm.: Gunnar Steinn). S K I N FAX I 7

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.