Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1975, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.10.1975, Blaðsíða 11
æskunnar á íslandi, þar sem manngildi æskunnar er vegið og mælt, jafnt í leik sem starfi. Landsmótsnefnd og framkvæmdastjóra hennar skulu hér þakkir færðar fyrir frá- bær störf og skipulagningu alla. ■—- For- ráðamönnum Akraneskaupstaðar og Ak- urnesingum öllum fyrir einstæða fyrir- greiðslu frá fyrsta viðræðudegi til loka þessa mikla undirbúningsstarfs. Sambandsaðilum UMSB, sem þrátt fyr- ir ákvörðun um breyttan mótsstað, hafa unnið mikið undirbúningsstarf og nýtt sína góðu þekkingu og reynslu í fram- kvæmd stórhátíða, í góðri samvinnu við Umf. Skipaskaga. Það er von okkar og vissa, að Akur- nesingar megi um ókomin ár njóta þess að hafa af slíkri framsýni og fórnarlund búið slíkri hátíð stað. I dag fylkjum við liði á einum glæsi- legasta íþróttaleikvangi landsins, íþrótta- höllin nýja mun eiga eftir að efla íþrótta- starfsemi heimamanna og raunar allra landsmanna. Landsmótin eiga að sýna alþjóð sam- takamátt hreyfingarinnar, og kynna hið fjölþætta og umfangsmikla starf sem unnið er innan ungmennafélagshreyfing- arinnar á íslandi á hverjum tíma. Aldrei fyrr hefur svo mikið starf verið innt af höndum af jafnmörgum aðilum á starfsvettvangi ungmennafélaganna, sem við undirbúning, þátttöku og framkvæmd þessa 15. landsmóts UMFÍ. Framundan er á þessu móti þrotlaust starf, en leikgleðin mun sem fyrr létta okkur störfin, og við gleðjumst yfir því að hafa með okkur á þessu móti óvenju marga erlenda gesti frá systurhrevfing- um okkar á Norðurlöndunum. Góðir landsmótsgestir, ungmennafé- lagsæskan á þetta mót og heldur þessa hátíð. Heill sé æskulýðs- og íþróttaleiðtogan- um góða Sigurði Greipssyni, sem af mik- illi hugsjón og harðfylgi endurvakti landsmótin, og sem æ síðan hefur átt þá hugsjón æðsta og besta að sjá æsku ung- mennafélaganna og forystumenn hennar fylkja liði til leiks og starfs á Landsmót- um Ungmennafélags íslands. Megi hreinskiptni, einlægni og harð- fylgi þessa svipmikla leiðtoga fylgja fé- lagsskap okkar og framkvæmd allri á þessu móti. 15. landmót UMFÍ er sett. „íslandi allt“. Framkvæmd landsmóts krefst mikils starfs sem unnið er af sjálfboða- liðum úr ungmennafé- lögunum. Á myndinni eru ungar stúlkur að störfum á skrifstofu landsmótsnefndar á Akranesi. S K I N FAX I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.