Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1975, Page 43

Skinfaxi - 01.10.1975, Page 43
Héraðsþing HSK Nokkrir ungir piltar sem voru á æfingu hjá Gunnari á vegum UNÞ sl. sumar. gengst t. d. fyrir bæði bridge- og skák- keppni að vetrinum. Á Kópaskeri er ekk- ert félagsheimili, en þar er notast við matsal sláturhússins á vetrum, og þar eru t. d. haldið borðtennismót um jólin og jafnvel keppt í blaki. íþróttasalurinn i Lundi er vel nýttur, og þar eru vikulega íþróttaæfingar fyrir almenning í sveitinni. Ungmennafólögin við Axarfjörð halda jafnan eina aðalskemmtun í Skúlagarði á hverjum vetri, og eru þar flutt skemmti- atriði frá öllum félögunum. 53. þing HSK gerði margar samþykkt- ir um störf og stefnumál sambandsins, og fleiri málefni, m.a. eftirfarandi: 1. 53. héraðsþing Skarphéðins vísar til fyrri samþykkta um bindindismál og skorar á sambandsfélögin og einstaka félaga að vinna að bindindismálum. Einkum leggur þingið áherslu á aukna fræðslu í skólum um skaðsemi ávana- og fíkniefna, sérstaklega með- al yngstu nemendanna. Ennfremur beinir þingið því til ungmennafélaga á sambandssvæðinu að beita sér fyr- ir fjölbreyttara og öflugra menning- arlífi í hinum ýmsu félagsheimilum á svæðinu. 4. Þingið hvetur til áframhaldandi þátt- töku ungmennafélaga í landgræðslu. Bendir þingið sérstaklega á eftirfar- andi verkefni á þessu ári: a) Farnar verði landgræðsluferðir í samvinnu við landgræðslu ríkisins og áburði og fræi dreift þar sem ekki er talið hent- ugt að koma flugvéladreifingu við. b) Melfræi verði safnað í samvinnu við Landgræðslu ríkisins laugardag- inn 30. ágúst. s) Unnið verði að upp- græðslu á vegköntum eftir því sem Vegagerð ríkisins kann að óska og ástæður leyfa. 9. Þingið beinir þeirri ályktun til stjófn- ar sambandsins að kannaðir vérði möguleikar á að sambandið komist yfir jarðnæði á hentugum stað á sambandssvæðinu, þar sem hægt væri að annast ýmis konar æskulýðsstarf- semi svo sem sumarbúðir, vinnuskóla, æfingabúðir o. þ. h. SKINFAXI 43

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.