Skinfaxi - 01.06.1976, Side 6
Frammistaða vestfirska frjálsiþróttafólksins
vakti mikla athygli á landsmóti UMFÍ í fyrra.
Hér sést úrslitaspretturinn i 100 metra hlaupi.
Bræðurnir Magnús og Angantýr Jónassynir
frá HVÍ koma fyrstir í mark. í miðið er Sig-
urður Jónsson HSK sem varð þriðji.
knattspyrnunnar í byggðarlaginu. Nú
væri hins vegar ætlunin að koma á
héraðsmóti í knattspyrnu innan HVÍ
í öllum aldurflokkum.
Enginn íþróttakennari starfar á
vegum HVÍ í sumar. Jón sagði að
Valdimar Jóhannsson íþróttakennari
hefði leiðbeint með góðum árangri
síðastliðin þrjú sumur, en nú væri
enginn fjárhagsgrundvöllur lengur
fyrir slíkum starfskrafti. Bestu kunn-
áttumenn á hverjum stað leiðbeina og
treyst er á sjálfboðaliða og þann
áhuga sem greinilega er ríkjandi í hér-
aðinu.
Við spurðum Jón um aðstöðuna til
íþróttaiðkana í héraðinu, og kvað
hann hana mjög bágborna. íþrótta-
völlurinn á Núpi er orðinn gamall og
úr sér genginn og þarfnast mikilla
endurbóta. Malarvellir til knatt-
spyrnuiðkana eru í þorpunum, en
frjálsíþróttafólkið finnur sárt til þess
hve aðstaðan er slæm, og það er ein
helsta ástæðan fyrir því að ágætt
iþróttafólk flyst úr héraðinu. Ekkert
íþróttahús er í héraðinu nema á Núpi,
en reynt er að notast við félagsheimili
og skólastofur sums staðar til inni-
íþrótta. Handknattleikur stúlkna er
æfður í einu félagi, en stúlkurnar
vantar keppinauta í héraðinu.
Að sjálfsögðu er um margs konar
starfsemi að ræða aðrar en iþróttir
hjá félögunum. Skák og spilamennska
er viða iðkuð í félögunum, og t. d. má
geta þess að Umf. Önundur hafði „opið
hús“ í félagsheimilinu nokkrum sinn-
um í vetur og mæltist það vel fyrir.
Umf. Mýrahrepps hefur alltaf á vet-
urna 3ja kvölda spilakeppni og svo
mætti lengi telja. Nokkurt nýmæli var
það í vetur að íþróttafélagið Grettir
á Flateyri setti leikrit á svið og sýndi
það víða um Vestfirði við frábærar
undirtektir. Þannig hefur starfið
margar hliðar. Leikstarfsemin hefur
stundum áður staðið með blóma, en
hinir ýmsu starfsþættir eru sveiflu-
kenndir í fámennum byggðarlögum og
oft koma kraftmikil starfstímabil á
ýmsum sviðum, ekki síst þegar nýir
starfskraftar láta til sín taka.
Ekki má gleyma að geta þess að
HVÍ hefur innan sinna vébanda sér-
stæðasta ungmennafélag á landinu.
Það er Umf. Vorblóm á Ingjaldssandi.
Þetta er lítið félag í einni afskekkt-
ustu byggð landsins. En 100% íbúanna
eru í ungmennafélaginu. Félagið á
bæði félagsheimili og bókasafn og
rekur hvort tveggja með myndarbrag.
Þá er aðeins eftir að geta þess að
ársþing Hví var haldið í maílok. Stjórn
þess skipa: Jón Guðjónsson formaður,
Kristinn Valdimarsson ritari og Ás-
valdur Guðmundsson gjaldkeri.
6
SKINFAXI