Skinfaxi - 01.06.1976, Blaðsíða 8
Jóni Þorsteinssyni íþróttakennara í
Sönderborg og frú hans, var það
einlægur ásetningur forustumanna
beggja landshreyfinganna að sam-
skipti þessi mætti auka ár frá ári með
gagnkvæmum íþrótta- og félagslegum
samskiptpm. Það er því ánægjulegt
til þess að vita, hversu vel hefur tek-
ist um þessi áform, og nú i sumar
hafa þessi samskipti við félaga okkar
í Danmörku verið hvað mest. Það er
hinn dugmikli framkvæmdastjóri okk-
ar Sigurður Geirdal, sem borið hefur
hita og þunga þessa starfs hér heima,
en hann er formaður utanríkisnefndar
UMFÍ.
í sumar mun láta nærri að um 100
íslenskir ungmennafélagar hafi sótt
Landsmótið í Esbjerg, þar af um 80
manns sem beinir þátttakendur í sýn-
ingum og keppni landsmótsins og 20
manna fylgdarlið.
Góðir fulltrúar
Undirritaður fullyrðir að þátttaka
sýninga- og keppnisfólks okkar hafi
Hér eru flestir íslensku
ungmennafélagarnir
saman komnir á einni
mynd sem tekin var í
Fuglsöcentret í sumar.
vakið verðskuldaða athygli á Lands-
mótinu í Esbjerg, verið góð landkynn-
ing og félagsskap okkar til sóma.
Hinn glæsilegi ungi sýningarflokkur
íþróttafélagsins Gerplu, undir öruggri
og festulegri yfirstjórn Margrétar
Bjarnadóttur, vann hug og hjörtu
allra áhorfenda á mótinu, og virtist
geta og hæfni ungu sýningarstúlkn-
anna koma mótsgestum fimleikaþjóð-
arinnar miklu skemmtilega á óvart.
Þá voru utanyfir-búningar sýningar-
flokksins sérlega fallegir og einstakir
á þessari miklu íþróttahátíð, þar sem
ótrúlegt úrval búninga kemur fram og
setur skemmtilegan svip á inngöngu
og allar sýningar íþróttaflokkanna.
Þjóðdansaflokkur Umf. íslendings
sýndi mikið mótsdagana, bæði á móts-
stað og við ýmis önnur tækifæri, jafn-
vel á Ráðhústorginu í Esbjerg ásamt
öðrum úrvalsflokkum á mótinu. Sýn-
ingar flokksins voru mjög skemmti-
legar og prógrammið vel samansett,
blandað ísl. vikivökum og léttum
gömlum dönsum, sem sumir hverjir
8
SKINFAXI