Skinfaxi - 01.06.1976, Blaðsíða 17
SPORT
kristnin orSin alls ráðandi i Róm, og
Þeódósíus keisari sem þóttist maður
sannkristinn, bannaði olympíuleikana
árið 393 eins og hverja aðra heiðna
trúarathöfn. En á Colessum í Róm
béldu hinar blóðugu „íþróttir“ áfram
úndir vernd kristninnar uns hrun
Rómaveldis varð algjört.
Olympíuleikar nútímans voru sem
kunnugt er endurvaktir árið 1896 í
Aþenu undir forystu og fyrir frum-
kvæði frakkans Pierre de Coubertain
(1863—1937). Honum var efst í huga
hið alþjóðlega friðarhlutverk olympíu-
leikanna. Sem kunnugt er lagði hann
áherslu á að aðalatriðið væri ekki að
sigra heldur að taka þátt í keppninni.
Hann var eindreginn andstæðingur
atvinnumennsku í íþróttum, og hug-
sjónum sínum var hann ætíð trúr og
barðist fyrir þeim af alefli.
En olympíuhugsjónin hefur oft átt
erfitt uppdráttar og aldrei eins erfitt
°g hin síðari ár, þar sem dulbúinni
atvinnumennsku hefur verið komið á
í naörgum löndum. Samt sem áður
halda olympíuleikarnir enn velli, og
vonandi tekst að varðveita þá i fram-
tíðinni þannig að þeir verði áfram
vettvangur íþróttaæskunnar úr öllum
heimi.
Frá því Pierre de Coubertin endur-
reisti olympiuleikana, hafa þeir verið
haldnir sem hér segir:
1896 í Aþenu
1900 - París
1904 - St. Louis
1906 - Aþenu
1908 - London
1912 - Stokkhólmi
1920 - Antwerpen
1924 - París
1928 - Amsterdam
1932 - Los Angeles
1936 - Berlín
1948 - London
1952 - Helsinki
1956 - Melbourne
1960 - Róm
1964 - Tókíó
1968 - Mexíkó
1972 - Múnchen
1976 - Montréal.
S KI N F A XI
17