Skinfaxi - 01.08.1976, Side 3
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVII. árgangur — 4. hefti 1976.
Ritstjóri og ábyrgóarm.: Eysteinn Þorvaldsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Æskulýðssamband
*
Islands
Ungmennafélag íslands hefur tekið
virkari þátt í starfsemi ÆSÍ undanfarin S
ár en nokkru sinni fyrr. Hefur UMFÍ jafnan
átt mann í stjórn samtakanna á þessum
tíma og í helztu nefndum sem ÆSl hefur
skipað.
Mikilvægasta fastanefndin í ÆSÍ er ut-
anríkisnefnd og eiga aðildarsamböndin að
jafnaði ekki mann bæði í stjórn og utan-
ríkisnefnd, þannig að nú á síðasta ári
hefur UMFÍ átt fulltrúa í utanríkisnefndinni
en ekki í stjórn. Þá á UMFÍ þrjá menn í
fulltrúaráði ÆSÍ eins og önnur aðildar-
sambönd þess.
Þessi starfsvettvangur er sá eini sem
UMFÍ fulltrúarnir eiga kost á, til þess að
vinna með og kynnast félögum fjölmargra
annarra æskulýðssamtaka í landinu, enda
hafa þarna oft skapast ánægjuleg kynni
sem leitt hafa til samvinnu við ýmis tæki-
færi.
Starfsvettvangur ÆSÍ er að langmestu
leyti erlend samskipti, og þátttaka í ráð-
stefnum sem haldnar eru til skoðana-
skipta, fræðslu og kynningar. Starfsemi
þess miðast að mestu leyti við Evrópu og
ÆSÍ sá aðili hér á landi sem er fyrir hönd
íslenskrar æsku í CENYC, Evrópusam-
bandi æskunnar.
Einnig hefur ÆSÍ með höndum fyrir ut-
an hið fjölþjóðlega samstarf, svokallaða
tvíhliða samvinnu um framkvæmd ýmissa
verkefna t. d. Island-Danmörk, ísland-
Noregur o. s. frv.
í starfi ÆSÍ að erlendum samskiptum
hittum við ungmennafélagar einnig ung-
mennafélaga frá hinum Norðurlöndunum,
þarsem öll aðildarsambönd NSU (samand
ungmennafélaga á norðurlöndum) eru
þátttakendur í þesu starfi.
Formaður ÆSÍ nú er Jónas Sigurðsson.
SKINFAXI
3