Skinfaxi - 01.08.1976, Blaðsíða 6
Á sumarhátíö UÍA að
Eiðum komust þúsundir
gesta í kynni við íþróttir
og aðrar hollar skemmt-
anir. Fjölbreytt íþrótta-
keppni og íþróttasýning-
ar voru á hátíðinni.
Myndin er frá judo-
sýningunni, en í baksýn
sjást knattspyrnumenn
sem bíða eftir keppni í
sinni grein.
auk þess er hin hliðin að með þessari
hátíð kemst starf UÍA fyrir augu
fólksins, og má segja að þvílíkur fjöldi
fólks hafi ekki komist í snertingu við
íþróttastarf UÍA um árabil. Að sjálf-
sögðu var nokkur byrjendabragur á
framkvæmdinni hjá okkur þar sem
lítið var um reynda starfskrafta, en
allt gekk þó stórslysalaust og við öðl-
uðumst dýrmæta reynslu sem mun
koma okkur að notum í framtíðinni.
Þá getum við nefnt utanlandsför
ungs íþróttafólks frá UÍA til Dan-
merkur í sumar í boði ÍSÍ en þangað
fóru 12 ungmenni ásamt tveim farar-
stjórum þeim Hermanni Níelssyni og
Pétri Eiðssyni. Dvöldu þau um viku-
tíma á íþróttamiðstöð Danska íþrótta-
sambandsins. Til þessarar farar var
valið okkar besta íþróttafólk á aldrin-
um 15—18 ára. Ferðin var vel undir-
búin og var þetta unga fólk bæði UÍA
og landi sínu til sóma.
Þá var fjölþætt iþróttastarfsemi og
mótahald á vegum sambandsins í
sumar samkvæmt venju, og má þar
nefna Austurlandsmót í knattspymu,
handknattleik, sundi, og Meistaramót
UÍA í frjálsum íþróttum sem áður er
nefnt. í öllum þessum mótum var
óvenju mikil þátttaka.
Auk þeirra fáu punkta sem ég hef
nefnt hér vil ég geta þess að gífurlega
mikið og vaxandi starf fer fram í hin-
um rúmlega tuttugu aðildarfélögum
UÍA, og verðum við þess greinilega
varir að starfsemi er í sókn, t. d. hafa
félög sem litið hefur borið á tekið upp
fjölþætta íþróttastarfsemi.
— Nú er 3. þing UÍA nýafstaðið
hvað viltu segja okkur um það?
— Fyrir þessu þingi sem haldið var
á Vopnafirði 12.—13. sept. lá óvenju-
mikill fjöldi mála, skíðamiðstöð á
Austurlandi, fræðslumál, fjármál, og
kynntar voru niðurstöður ráðstefnu
6
SKINFAXI