Skinfaxi - 01.08.1976, Page 8
Olympíuleikarnir
í Montréal
Olympíuleikarnir, sem haldnir voru
í sumar í Montréal í Kanada, þóttu
sérstakir fyrir margra hluta sakir. Þar
voru ekki aðeins ný og stórkostleg
íþróttaafrek unnin, heldur settu póli-
tísk átök alvarlegri svi á þessa hátíð en
nokkru sinni áður. Það væri að bera
í bakkafullan lækinn að bæta hér
miklu við allt það lesmál sem birst
hefur og öll þau orð sem töluð hafa
verið um þessa íþróttahátíð. Slík stór-
hátíð kostar gífurlegt fé og skipulagn-
ingu, og lengi vel var það mjög tvísýnt
hvort gestgjöfunum tækist að gera
mannvirki leikanna nothæf i tæka tíð.
En þegar sá björninn var unninn, hóf-
ust nýir erfiðleikar með miklum við-
sjám eftir að íþróttaflokkarnir úr öll-
um heimshornum voru komnir til
Montréal. Um 30 ríki þriðja heimsins
(flest í Afríku) hættu við þátttöku og
sendu íþróttafólk sitt heim. Ástæðan
var sú að þessi ríki fengu ekki þeirri
kröfu fullnægt að nýsjálendingum
væri bönnuð þátttaka vegna íþrótta-
samskipta Nýja-Sjálands og Suður-
Afríku. Þetta var að sjálfsögðu mikið
áfall fyrir olympíuleikana, og margir
Nadia Comaneci frá
Rúmeníu var tvímæla-
laust vinsælasti kepp-
andinn á olympíuleikun-
um og heillaði alla með
fimleikasnilld sinni. Á
myndinni sést hún ljúka
við æfingarnar á svif-
ránni.
8
SKINFAXI