Skinfaxi - 01.08.1976, Page 20
að gleypa vöðvaaukandi lyf (anabol-
ika), en slík lyf voru upphaflega fram-
leidd til að hindra vöðvarýrnun hjá
sjúklingum. Olympíusigurvegarinn í
kringlukasti innbyrðir meira af þessu
efni „en við þyrðum að gefa fíl með
góðri samvisku", sagði dr. Segasser um
lyfjanotkun McWilkins.
Anabolika inniheldur karlhormónið
„testesteren". Það veldur skemmdum
á nýrum og lifur, minnkar kyngetuna
og veldur skeggvexti hjá konum. Ekki
hefur tekist að sanna fullyrðingar um
að þetta efni valdi krabbameini. Nú
keppast vísindamenn við að reyna að
gera þetta lyf svo úr garði að það hafi
engar aukaverkanir.
TILBÚNIR KRAFTAKARLAR
„Kúluvarp yfir 18 metra er varla
lengur um að ræða án notkunar ana-
bolika, og alls ekki köst yfir 21 metra“,
sagði læknirinn Mader, einn af að-
stoðarmönnum áðurnefnds dr. Hol-
mans. Til þess að komast í aðalkeppni
olympíuleikanna þurftu menn að
varpa kúlunni 19,40 m, og aðeins 11
keppendum tókst það. Hvers vegna
ekki fleirum. Hvers vegna voru flestir
langt frá sínum besta árangri?, spyr
margur. Sennilega er enginn í vafa um
svarið: Á olympíuleikunum í Montréal
var í fyrsta sinn kannað vísindalega
hvort keppendur hefðu neytt anabol-
ika-lyfja sem voru bönnuð.
Þetta var samt mest áberandi hjá
lyftingamönnunum. Margir þeirra
voru mjög langt frá sínu besta, en
samt munu nokkrir hafa hætt of seint
við þessa lyfjanotkun, því að verð-
launin voru dæmd af þremur verð-
Austurþýski beljakinn Gerhard Bonk þótti
grunsamlega langt frá sínum besta árangri í
Iyftingum.
launahöfum eftir á. Þýski methafinn
í yfirþungavigt, Bonk frá A-Þýska-
landi var 27,5 kg undir metinu, og
heimsmethafinn í milliþungavigt
(flokki Guðmundar Sigurðssonar) var
17,5 kg frá meti sínu og svo mætti
lengi telja. Austur-Þjóðverjinn Petz-
ald sem varð 6. í milliþungavigt með
345 kg lyfti 20 kg meira mánuði síðar
á Eystrasaltsmótinu, en þar var ekki
rannsökuð notkun hormónalyfja. í
rannsókninni sem gerð var á OL, kem-
ur aðeins fram ef keppendur hefðu
neytt anabolika 2—3 síðustu vikurnar
fyrir keppni.
DIMMRÖDDUÐU STÚLKURNAR
„SÝKNAÐAR"
Hollman sagði að engin ástæða
væri til að ætla að orðrómurinn um
að austurþýsku sundkonurnar neyttu
hormónalyfja, væri á rökum reistur.
Árangur þeirra á OL var líka slíkur að
útilokað þykir að þær hafi hætt lyfja-
notkun og samt sett hvert heimsmetið
20
SKINFAXI