Skinfaxi - 01.06.1977, Blaðsíða 4
Tekið til í
Þrastaskógi
Þriðjudaginn 28. júní sl. var kyrrSin í Þrasta-
skógi skyndilega rofin. Hópur unglinga um 50
að tölu var mættur þar, búinn alls kyns verk-
færum og tólum. Við nánari eftirgrenslan
kemur í ljós, að þar eru á ferðinni ungmenni
úr Mosfellssveit, sem hafa í hyggju að taka til
hendinni á þessum friðsæla reit, enda ekki
orðin vanþörf á. Vinnufúsar hendur taka til
starfa, hreinsa upp lífvana sprek og lagfæra
girðingar. Verkinu er stjórnað af röggsemi, og
verkstjórinn er Páll Aðalsteinsson form. XJmf.
Aftureldingar og UMSK með meiru. Það er að
hans frumkvæði sem hópurinn er þar mættur
til starfa.
,,>i
J
4
SKINFAXI