Skinfaxi - 01.06.1977, Blaðsíða 23
Vinabæjarmót
í Svíþjóð
Hafsteinn
Jóhannesson.
Mót þessi hafa verið haldin árlega
frá 1966 og á þeim tíma tvívegis í
Kópavogi 1970 og 1975. Keppnin sjálf
stendur í einn dag en keppendur fá
svo þrjá daga til að skoða sig um á
staðnum. Nú síðustu árin hafa stig
verið reiknuð fyrir afrek hvers og eins
eftir stigatöflu og stig liðanna lögð
saman, en frá upphafi hefur sá sem
besta afrekið vinnur samkv. stigatöflu
í sínu liði hlotið verðlaun.
Þeir, sem valdir hafa verið til farar-
innar að þessu sinni, eru þau Björg
Eysteinsdóttir, Hjördís Magnúsdóttir,
Ágúst Gunnarsson, Jón Þ. Sverrisson,
Óli Daníelsson og Guðjón Sigurðsson,
en fararstjóri verður Hafsteinn Jó-
hannesson form. frjálsíþróttadeildar
Breiðabliks.
20.—23. ágúst fer fram í Nordköping
í Svíþjóð vinabæjamót í frjálsum
íþróttum 20 ára og yngri. Sex manna
hópur frjálsíþróttafólks úr Kópavogi,
4 karlar og 2 stúlkur, taka þátt i móti
þessu, sem orðinn er árlegur viðburð-
ur. Að mótinu standa vinabæirnir
Þrándheimur Noregi, Nordköping
Svíþjóð, Tammerfoss Finnlandi, Óð-
insvé Danmörku og Kópavogur. Við
val liðanna er gjarnan miðað við það
að þeim sem staðið hafa sig það vel
að vera við það að komast í landsliðið,
er gefinn kostur á að fara á þessi
vinabæjarmót og fá þannig nokkra
umbun fyrir það erfiði sem þeir hafa
lagt á sig við þjálfun sína. Jafnframt
er tekið mið af því hversu virkir þeir
hafa verið við störf í félagi sínu.
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Framleiði alls konar verðlaunagripi og
félagsmerki. Hefi ávallt fyrirliggjandi ýmsar
stærðir verðlaunabikara og verðlauna-
peninga einnig stytíur fyrir flestar
greinar íþrótta.
Leitiö upplýsinga.
Magniís E. Baldvinsson
Laugavegi 8 - Reykjavík - Sími 22804
SKINFAXI
23