Skinfaxi - 01.06.1977, Síða 5
FRÁ ÞINGUM
HÉRAÐSSAMBANDA
Sambandsþing USVS
Ungmennasamband Vestur-Skaft-
fellinga hélt sambandsþing sitt
sunnudaginn 19. júní sl.
Þingið var mjög vel sótt af aðildar-
félögum sambandsins, og skipað ungu
og áhugasömu fólki.
Gestir þingsins voru Ólafur Odds-
son frá framkvstjórn UMFÍ, Sveinn
Björnsson varaforseti ÍSÍ og Gunnar
Kristjánsson ritstjóri Skinfaxa.
Merkasta mál þingsins var stórfelld
breyting á lögum sambandsins, sem
orðin voru gömul og úr sér gengin.
Ungmennasamband Vestur-Skaft-
fellinga hefur nú allra síðustu árin
tekið að rétta úr kútnum og starfsemi
þess aukist á sviði íþrótta og félags-
mála. Á félagssvæðinu er þó nokkur
fjöldi af ungu hæfileikafólki sem læt-
ur ekki erfiðar aðstæður aftra sér frá
því að stunda íþróttir, og hafa nokkur
ungmenni þegar náð umtalsverðum
árangri.
íþróttaleg samskipti héraðssam-
bandsins út á við verða þau helst að
lið frá USVS tekur þátt í 3. deildar
keppni í knattspyrnu, hópur frjáls-
íþróttafólks mun taka þátt í Bikar-
Skúli Oddsson
form. TJSVS.
keppni FRÍ 3. deild, fjórðungsmóti
sunnlendingafjórðungs og árlegri
keppni við USÚ.
Héraðssambandið hefur ráðið til
sín framkvæmdastjóra sem einnig
mun sjá um þjálfun á sambandssvæð-
inu. Heitir hann Jón Júlíusson.
Stjórn USVS skipa Skúli Oddsson
form., Guðmundur Elíasson ritari og
Guðni Einarsson gjaldk.
SKINFAXI
5