Skinfaxi - 01.06.1977, Qupperneq 6
NÝ KEPPNISGREIN? Ljósm. Sig. G.
Boðsund með bundið fyrir augun er tæplega víða iðkað. Slíkt sund fór fram á sumrinu og
var einn Iiður i hátíðaliöldum 17. júní á Kirkjubæjarklaustri sem Umf. Ármann sá um
ásamt ýmsum iþróttagreinum. Meðfylgjandi myndir eru frá upphafi keppninnar, og endalok-
um. I>að varð mörgum keppandanum þrautin þyngri, að komast styttstu leið milli enda
laugarinnar, mátti oft litlu skeika með stefnuna er snúið var við hinn bakkann.
Ársjiing ungmennasambands Dalamanna
og Noröur-Breiöfiröinga
Ársþing Ungmennasambands Dala-
manna og Norður-Breiöfirðinga var
haldið að Tjarnarlundi í Saurbæjar-
hreppi sunnudaginn 19. júni sl. Þetta
er fyrsta þing UND um langt árabil,
sem fulltrúar UMFÍ sækja heim, en
þeir Sigurður Geirdal og Hafsteinn
Þorvaldsson fóru vestur daginn fyrir
þingið og aðstoðuðu við undirbúning
þess.
Starf UND hefur verið í lægð nokk-
ur undanfarin ár, en nú ríkir þarna
mikill framfarahugur undir forystu
ungs formanns Úlfars Reynissonar á
Kj arlaksvöllum.
Þetta var að mörgu leyti tímamóta-
þing hjá UND og voru aðalmál þess
skipulagsmál svo og íþróttaleg sam-
skipti bæði innávið og útávið. Á þing-
inu var í fyrsta sinn lögð fram fjöl-
rituð ársskýrsla, hin myndarlegasta
að uppsetningu og frágangi. Hún bar
með sér að starf UND er í örum vexti
og viðfangsefin að aukast að fjöl-
breytni og umfangi, enda er félagatala
UND ört vaxandi.
Innan UND eru starfandi eftirtalin
félög:
félagar
Ungmennafél. Æskan Miðdölum 60
Ungmennafél. Ólafur Pá Laxárdal 62
Ungmennafél. Dögun Fellsströnd 27
Ungmennafél. Stjarnan Saurbæ 56
Ungmennafél. Unglingur Geirdal 22
Umf. Afturelding Reykhólasveit 30
Sundfélag Hörðudals ?
Umf. Auður Djúpúðga Hvammssv. ?
Umf. Von Klofningshreppi ?
Umf. Vaka Skarðshreppi ?
Sigurður Geirdal.
6
SKINFAXI