Skinfaxi - 01.06.1977, Qupperneq 7
Breytt
innheimtuaðferð
Eins og getið var um í Skinfaxa, 1.
tbl. 1977, verður nú breytt um inn-
heimtuaðferð, en eins og lesendum er
kunnugt hefur innheimta farið fram
í gegnum umboðsmenn í hverju ung-
mennafélagi frá upphafi. Ósann-
gjarnt væri að segja að sú aðferð hafi
alls staðar misheppnast þvert á móti
hafa margir þessara umboðsmanna
staðið sig með sóma og lagt fram
óeigingjarnt starf í þágu góðs mál-
efnis.
En þegar á heildina er litið sést að
slíkt fyrirkomulag er ekki sem væn-
legast og þá ekki síst þegar fjármagns-
skortur stendur blaðinu fyrir þrifum.
Eins og meðfylgjandi töflur bera með
sér er mikið fjármagn útistandandi í
óinnheimtum áskriftargjöldum.
Áskriftargjöld verða framvegis inn-
heimt með útsendum gíróseðlum, og
verður áskriftargjald fyrir 1977 inn-
heimt á þann hátt. Ákveðið hefur ver-
ið að það verði 1000 kr.
Þeir sem skulda áskriftargjöld frá
fyrri árum eru vinsamlegast beðnir
um að snúa sér til umboðsmanna
Skinfaxa á hverjum stað eða þá að
senda þau beint til skrifstofu UMFÍ
í gíró póstávísun.
Gefinn verður frestur, til að ljúka
eldri skuldum, til áramóta ’77—’78 en
úr því verður að taka alla þá sem
skulda áskriftargjöld fyrir 1976, og
þaðan af eldri út af skrá.
Ljóst er að víða hefur verið mis-
brestur á að umboðsmenn hafi gert
tilraun til innheimtu áskriftargjalda,
og margir áskrifendur hafa ef til vill
ekki verið vissir um hvert ætti að snúa
sér með greiðslu áskriftargjalda, en nú
ætti allri óvissu að vera eytt og er það
einlæg von okkar allra sem að þessum
málum vinna, að ekki komi til þess að
strika þurfi marga út af áskrifenda-
lista.
Hér á eftir eru birtar töflur yfir
áskrifendafjölda Skinfaxa og greiðslu-
skil innan hvers héraðssambands og
þeirra ungmennafélaga sem hafa
beina aðild, svo og þann fjölda sem
eru utan við þessi samtök.
SKINFAXI
7