Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1977, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.06.1977, Blaðsíða 18
Nýráðnir framkvæmdar- stjórar Á síðustu árum hefur það stöðugt færst í vört að einstök héraðssam- bönd ráði til sín launaða starfsmenn, þar sem áhugamennskan ein dugir ekki lengur til að standa undir stór- auknum umsvifum. Þrjú héraðssambönd hafa á þessu vori ráðið til sín starfsmann, en þau hafa öll haft slíkan starfskraft áður. Skinfaxi kynnir hér hina nýju starfsmenn sem venjan hefur verið að kalla framkvæmdastjóra, og býður þá velkomna til starfa. Hjá ungmennasambandi Eyfirðinga hefur nýr framkvæmdastjóri tekið til starfa, sá heitir Halldór Sigurðsson. Halldór er fæddur og uppalinn að Grenjaðarstað í S-Þingeyjasýslu. Þegar námi lauk á Laugum lágu leiðir til Svíþjóðar, þar sem hann dvaldi við nám í Lýðháskólanum í Kungálv í eitt ár, að því loknu varð iþróttakennaraskólinn fyrir valinu og þaðan lauk hann prófi vorið 1968. Halldór hefur verið kennari í Þela- merkurskóla Eyjafirði frá 1970. Fyrir utan íþróttaáhuga frá barns- aldri og þá ffrst og fremst knatt- spyrnu hafa afskipti hans af fé- lagsmálum verið allnokkur. M.a. hefur hann verið í stjórn Umf. Skriðuhrepps í 5 ár þar af tvö sem formaður þess. Þá hefur Halldór setið nokkur ár i varastjórn UMSE og var varaform. þess árið 1976 en á síðasta þingi þegar afráðið var að hann tæki við fram- kvæmdastjórastöðunni kaus hann að gefa ekki kost á sér aftur. Aðsetur Halldórs er á skrifstofu sambandsins Óseyri 2 Akureyri en sími þar er 22920. ísólfur Gylfi Pálmason frkvstj. HSH. Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu hefur nýlega ráðið ísólf Gylfa Pálmason sem framkvstj. ísólfur Gylfi er fæddur á Hvolsvelli 17. mars 1954, og sleit hann þar barnsskónum. Hann stundaði nám í Kennaraskóla íslands um tveggja ára skeið, þá dvaldi hann við nám í íþróttum við Sönderborgarskóla Danmörku í eitt ár og lauk síðan prófi frá íþróttakenn- araskóla íslands vorið 1976. Áhugi hans fyrir íþróttum og félags- málum kviknaði er hann ungur að árum dvaldi i sumarbúðum hjá Vil- hjálmi Einarssyni og Höskuldi Goða Karlssyni í Reykholti 5 sumur í röð. Hefur hann síðan haft margs konar 18 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.