Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 3
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags fslands — LXX árgangur — 1. hefti 1979
Ritstjóri og ábyrgóarmaður: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Við áramót
Eitt viðburðaríkt ár er liðið i aldanna skaut. Ár mikilla sviptinga á vettvangi þjóðmál-
anna, þar sem valdahlutföll stjórnmálaflokkanna röskuðust verulega í tvennum kosning-
um. Glíman við hinn margumrædda verðbólgudraug stendur stöðugt, og virðist nú komin
á það stig, að landsmenn almennt gera sér grein fyrir því að hér er um að ræða ófreskju
sem stefnir þjóðarheill í voða. Árið 1978 mun verða talið aflaár til lands og sjávar, og at-
vinna vart næg fyrir alla landsmenn.
Nýliðið ár hefur einnig reynst ýmsum ár erfiðleika og brostinna vona, einkum þeim sem
séð hafa á bak ástvinum sínum í óvæntum slysum og á annan hátt.
Fyrir UMFÍ verður nýliðið ár að teljast happaár og ár mikilla og merkra atburða í sögu
samtakanna.
16. Landsmót UMFÍ fór fram á Selfossi dagana 21.—23. júlí, glæsilegt mót sem vitnaði
um iþrótta- og félagslegann styrk hreyfingarinnar. 4. nóv. var félagsheimili UMFÍ að
Mjölnisholti 14 í Reykjavík til formlegra nota tekið. En sama dag var 21. Sambandsráðs-
fundur UMFÍ haldinn í Kópavogi, þar sem meðal annars var gerð grein fyrir glæsilegum
árangri húskaupanefndar. Þar sem fagnað var endurskipulagðri útgáfu Skinfaxa, og lögð
drög að stórefldri starfsemi Félagsmálaskóla UMFÍ. Þá hefur það nú gerst í fyrsta skipti i
sögu UMFÍ að ríkisvaldið hefur séð ástæðu til þess að styðja samtökin fjárhagslega um þá
upphæð sem farið var fram á. Þennan árangur ber vissulega mörgum að þakka bæði fram-
kvæmda- og stuðningsaðilum, en fyrst og fremst tel ég, að okkur beri að taka hann sem
hvatningu og viðurkenningu á því að enn sem fyrr sé ungmennafélagshreyfingunni ætlað
mikið hlutverk i uppeldis-, félags- og menningarmálum þjóðarinnar.
Ár barnsins 1979 er gengið i garð!
Fyrir því heiti ég á okkur öll að vinna vel, en sem fyrr er það grunnurinn og von ís-
lensku þjóðarinnar, að takast megi að rækta einstaklinginn til góðra og nytsamra verka í
Þjóðfélaginu undir kjörorði ungmennafélaganna.
íslandi allt.
Hafsteinn Þorvaldsson.
SKIIMFAXI
3