Skinfaxi - 01.02.1979, Síða 5
Sigurjón
Bjarnason
framkvæmdastjóri
UÍA.
skóginum, a.m.k. yfir sumarið, og skal
hann hafa eftirlit, eða stjórna allri starf-
semi sem fram fer í skóginum.
2. Rétta stefnu tel ég þá, að hvetja einstök
héraðssambönd til að koma sér upp húsi
í skóginum, þar sem fólk af viðkomandi
sambandssvæði gæti dvalið yfir sumar-
ið.
3. Fyrir þetta fólk verður að skipuleggja
einhverja starfsemi, og stöðug kynning
verður að vera i gangi um eðli og tilgang
ungmennahreyfingarinnar.
4. Gróðursetning og önnur fegrun og við-
hald svæðisins er það verkefni sem öllu
þessu fólki ætti að vera ljúft að starfa
að. Ætti því að leggja megináherslu á
skipulagningu slíks starfs, svo og íþrótta-
og kvöldvökuhalds.
5. Umgengisreglur í aldingarði sem þessum
mættu vera nokkuð strangar og ræki-
lega kynntar fyrir gestum, þannig að
enginn verðir fyrir óþarfa átroðningi af
öðrum, og að gróðurríkið spillist ekki.
6. í skóginum þarf að stórbæta sameigin-
lega aðstöðu; koma upp búningsklefum
og böðum við íþróttavöll, já og lagfæra
völlinn. Þá þarf nauðsynlega að merkja
göngustíga og takmarka umferð utan
þeirra o.fl. o.fl.
Ef þessar hugmyndir gætu orðið að veru-
leika, væri skógurinn gróðurreitur íslenskr-
ar æsku í tvennum skilningi. Hver og einn
sem kæmi til með að dvelja í skóginum
gæti sett sér það takmark að skilja við hann
fegurri og betri en áður.
Auk þess gæti sérhver sótt þangað
ánægjulegar og þroskandi samverustundir
með fólki víðs vegar af landinu. Og öll
getum við verið sammála um að góður ung-
mennafélagi er hollur og skemmtilegur fé-
lagi, og honum er gott að kynnast í skjóli
hreyfingarinnar.
íslandi allt.
Ungmennafélagar - samdnumtí
Ryðjum reyknum burt ur samto
Látið aðra virða rétt reyklausra. skinfaxi
skinfaxi
5