Skinfaxi - 01.02.1979, Page 13
Þráinn Hafsteinsson:
Litið yfir afrekaskrána 1978
KARLAR
Spretthlaupin:
Árangurinn í spretthlaupunum er mun betri en
1977. Angantýr bætir sig lítið sem ekkert enda alger-
lega æfingalaus og því miður virðist lítil breyting ætla
að verða þar á. Jakob bætti sig verulega frá árinu áður
og er vonandi að áframhald verði á framförum hans.
Aðalsteinn hefur aldrei verið betri en í sumar í
hlaupunum og ætti að tryggja sér landsliðssæti í 400
m ef hann snýr sér að æfingum af krafti. Pétur er í
örri framför, en þarf mjög líklega að laga hlaupastíl-
inn og ná meiri mýkt til að um verulegar framfarir
verði að ræða. Jón Þ. Sverrisson getur náð mun betri
árangri en hann náði í sumar. En til þess þarf hann að
Hver verða afrek þeirra á næsta sumri?
Jón Diðriksson UMSB
sýna meiri hörku og einbeitingu í keppni til að nýta
þann kraft og snerpu sem hann hefur.
Millivegalengdahlaup:
Jón Diðriksson hafði algera yfirburði í 800 og 1500
m enda æft í samræmi við það. Ágúst Þorsteinsson
var í sérflokki í 3000—5000 og 10.000 m. Hann sýndi
þó ekki það sem í honum bjó í sumar. Enginn vafi er á
því að Ágúst bætir sig verulega á næsta sumri. Stefán
Hallgrímsson stóð vel fyrir sínu í 800 m, en hefði
getað gert mun betur.
Björn Skúlason UlA kom langmest á óvart á
hlaupabrautinni í sumar. Gott keppnisskap, harka og
seigla leiddu hann til ágætis afreka. Ungir hlauparar
komu fram á sjónarsviðið svo sem Jóhann Sveinsson,
Björn Skúlason Stefán Friðleifsson Hólmfríður Erlingsdóttir.
SKINFAXI
13