Skinfaxi - 01.02.1979, Page 20
Vikan var haldin á skógræktarskóla í
Osby, „Osby skogskole”. Þennan skóla
ættu margir íslendingar að kannast við þar
sem þeir hafa verið þar við nám. Var vel
hægt að sjá merki þess.
Dagskráin var í stórum dráttum á þá
leið, að hópurinn skipti sér niður í starfs-
hópa eftir áhugamálum og vann síðan að
ákveðnum verkefnum. Verkefnin að þessu
sinni voru sögur, þjóðdans, alls kyns fönd-
urvinna að sænskum sið og svo hópur er
hét „Nytjar og not skóga”, sem var vinsæll
meðal íslendinga. Þar var farið í skógar-
ferðir, menn kynntust skógrækt og skógar-
höggi.
Nú ekki voru menn alltaf í þessum starfs-
hópum, farið var í skoðunarferðir um ná-
grennið og sögufrægir staðir skoðaðir frá
því að Danir ríktu á Skáni. Farið var í sund,
leiki svo og verslunarferðir.
Á kvöldin voru haldnar kvöldvökur, þar
sem ýmislegt var á boðstólum, starfshóp-
arnir komu hver með sinn dagskrárþátt,
kynning á ungmennasamböndum allra
landa svo og sögur og dans.
Þetta er í stórum dráttum skipulagning
vikunnar, en oft var fundið upp á ýmsu
utan dagskrár mönnum til skemmtunar, en
of langt mál yrði að fara að fjalla um það
hér.
Eftir 6 daga dvöl rann upp kveðju-
stundin, sem er endapunkturinn á
Norrænni ungmennaviku, en langt því frá
að vera endirinn á þeirri vináttu er orðið
hefur til meðal þátttakenda. Á heimleiðinni
var komið við í Kaupmannahöfn og dvalið
þar í 2 daga, gerðu menn sér þar ýmislegt til
skemmtunar.
Ekki er hægt að segja skilið við þetta efni
án þess að vekja athygli á þvi að næsta ung-
mennavika verður haldin í Finnlandi ^
sumri komanda. Vil ég því benda ung-
mennafélögum að vera vel vakandi er til-
kynning þess efnis birtist í Skinfaxa með
vorinu.
í von um að sem flestir taki þátt í þessum
Norræna ungmennastarfi og viðhaldi því.
S-Slésvískar
ungmeyjar.
20
SKINFAXI