Skinfaxi - 01.02.1979, Síða 23
A Idarháttur
os
eðli rnáfo
Það eru alla jafnan ekki ófá skiptin sem
ungmennafélagshreyfinguna í landinu ber
á góma, hvort sem er í ræðu eða riti, en
slíkt þarf ekki að telja til undrunar þar sem
um svo fjölmenn og söguleg samtök er að
ræða.
Það sem títt einkennir málflutning þann
sem hafður er í frammi um ungmennafé-
lagshreyfinguna er gegndarlaus lofgjörð
um þátt baráttuglaðra ungmenna í þjóð-
frelsisbaráttu sem leiddi af sér stórvirki á
sviði menningar og landsmála yfirleitt. Þeir
sem í þessum anda rita eða tala sakna flestir
þessa þáttar i starfi ungmennafélaga í dag
og gráta þá andleysu sem nú ríkir í þessum
hinum sömu herbúðum, og hrópa bæði
hátt og í hljóði. — Það er af sem áður var.
Þeir hinir sömu virðast ekki hafa náð sam-
bandi við tíðarandann og þær ólíku að-
stæður sem ungmennafélagar búa við í dag.
Hér er all ólíku saman að jafna, háþróuðu
iðnaðarsamfélagi okkar tíma og einföldu
bændassamfélagi fyrri hluta þessarar aldar,
þar sem fábreytni og hversdagsleiki gleypti
hugmyndafræði ungmennafélagsskapar
hráa og varð gott af svo sem dæmin sanna.
í dag stendur ungmennafélagshreyfingin í
stríði við stórbreyttar aðstæður. Félög og
félagasamtök spretta upp og bera ótal nöfn
sem of langt yrði upp að telja. Flest þeirra
togast á um sömu mennina einfaldlega þá
sem gefa vilja sig til forystu, sem verða sí-
fellt færri og færri, vegna þess að þá fá þeir
ekki frið fyrir hinum félögunum. Sumir
leiðast út í þá fásinnu að dreifa kröftum og
tíma um of, þeir safna titlum, kannski í því
skyni að þeirra veðri vel minnst á hinstu
stundu, aðrir láta hreinlega undan þrýstingi
og gera sér ekki grein fyrir því hvað þeir eru
að leiðast út i en þeim er vorkunn, allt
þeirra starf verður hálfkák, ekkert verk
vinnst til fullnustu. Við þessar aðstæður
býr ungmennafélagshreyfingin í dag og þá
hefur ekki verið tekinn í myndina þáttur
Mammons hins mikla — enginn getur
lengur gert neitt án þess að fyrir komi
greiðsla — peningar — peningar —
peningar — og hvers vegna skyldi það
ekki vera þannig, hverjir geta nú skorast
undan að dansa í kringum Gullkálfinn.
G.K.
SKINFAXI
23