Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 26
Eins og mönnum er kunnugt var lyft- ingamaðurinn Skúli Óskarsson UÍA kjörinn „íþróttamaður ársins 1978”. Skúli hefur jafnan verið tryggur félagi sínu, Leikni á Fáskrúðsfirði, og heima- sambandi sínu UÍA og alltaf keppt undir nafni þess. Af þessu tilefni ákvað stjórn UMFÍ að heiðra Skúla sérstaklega enda er hann fyrsti íþróttamaðurinn sem keppir undir nafni ungmennafélaganna sem þennan heiður hlýtur. Mánudaginn 22. janúar var Skúla boðið í Mjölnisholt 14 en þar voru fyrir framkvæmdastjórn UMFÍ og Dóra Gunnarsdóttir varaformaður UÍ A. Formaður UMFÍ Hafsteinn Þor- valdsson afhenti Skúla vináttufána UMFÍ á stöng sem á var letrað: „Skúli Óskarsson UIA íþróttamaður ársins 1978”. Hafsteinn þakkaði Skúla tryggð hans við átthagana og hreyfinguna og kvað hann góða fyrirmynd íþróttafólks einkum hvað keppnisgleði og hressileg- heit á leikvelli snerti, enda hefði fram- ganga hans jafnt í keppni sem utan unn- ið honum almennar vinsældir. Skúli þakkaði fyrir sig hress að vanda og virtist viðstöddum ekki eitt eða neitt benda til þess að hann mundi nokkuð slaka á á næstunni. Ungmennafélagar samfagna Skúla og honum fylgja bestu óskir okkar allra um velgengni í framtiðinni bæði innan vallar og utan. S.G. 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.