Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1980, Síða 9

Skinfaxi - 01.12.1980, Síða 9
Ég byrjaði á því að spyrja Sveiri um œtt og uppruna. Sveinn er fæddur vestast í vest- urbænum (þcim eina sanna vest- urbæ segir Sveinn) sonur Björns G.Jónssonar kaupmanns og fram- kvæmdastjóra Tónlistarfélagsins og Ingibjargar Sveinsdóttur frá Hálsi í Eyrarsveit. Sveinn ólst upp í vesturbænum en lluttist 22 ára í austurbæinn. Hver voru þín jyrstu kynni af íþrótta- og félagsstarfinu? Faðir minn var gjaldkeri í KR um tíma og var m.a. Islands- mcistari í knattspyrnu 1919 og þess vegna lá leiðin eðlilega beint í KR og þar hef ég reyndar verið síðan. Raunar sagði láðir minn mér síðar að hann hafi skráð mig í KR strax við fæðingu. Eg byrjaði sem unglingur í knattspyrnunni, og fór síðan í frjálsar, og lagði aðallega áherslu í hlaupin, keppti mest í 400 og einnig í fleiri greinum. Eflir að ég hætti í frjálsum fór ég að iðka badminton ogvarð m.a. Islandsmeistari í 1. llokki sem gaf mér rétt til að leika í meistara- flokki, og það gerði ég í nokkur ár. I dag fer minna fyrir keppninni, aðeins heilsubótarskokk. Sveinn er nœst spurður um triinaðarstöður innan íþrótta- hreyfingarinnar, og þar reynist af nógu að taka. Eg var í stjórn frjálsíþrótta- deildar KR frá 1944 til 1953, cn þá var ég kjörinn í aðalstjórn fé- lagsins og sat þar í 25 'ár, þar af varaformaður í 15 ár. Arið 1954 var ég kjörinn í hússtjórn íélagsins og hefverið í hcnni síðan. Allt frá 1955 hef ég verið gjaldkeri hús- stjórnar, auk þcss sem ég var for- maður nefndarinnar um limm ára skeið. Eg hef svo verið í íþrótta- ráði Reykjavíkurborgar frá 1974 og lormaður þar 1974—’78. I varastjórn ÍSI var ég kosinn 1961 og í aðalstjórn 1962, fyrst var ég fundarritari, síðan ritari og 1970 er ég svo kosinn varaforseti og gcngdi ég þv'í cmbætti í 10 ár eða þar til á síðasta þingi. Tilnefndur af stjórn ÍSÍ hef ég svo setið í íþróttanefnd ríkisins síðastliðinn áratug. Fyrir utan þetta er ég varaformaður Olymp- íunefndar íslands og hefverið það sl. 8 ár. Eftir þessa upptalningu lá beint við að spyrja Svein um fjölskyld- una. Eg á ákaflega skilningsríka konu segir Sveinn, Ragnheiði Thorsteinsson og hún þekkir mig ekki öðruvísi en á kafi í þcssu fé- lagsmálastússi. Yngstu synir mín- ir þeir Geir og Sveinn eru iðkend- ur í knattspyrnu og handknattleik í knattspyrnufélaginu Val og Geir hefur orðið Islandsmeistari í báð- um greinunum, en Sveinn í knatt- spyrnunni. Eldri krakkarnir eru Björn og Margrét, en þau eru bæði búsett í Bandaríkjunum um þessar mundir. Ég man vel eftir Sveini sem for- ystumanni ýmissa stórra verkefna á vegum ÍSÍ á undanförnum ár- um og vil vita örlítið nánar um þá hlið á starfi hans. 1966, segir Svcinn, var sam- þykkt á þingi ÍSÍ að steliia að því að halda íþróttamót á árinu 1970 í tilefni af 50. íþróttaþinginu sem þá yrði haldið. Þetta snerist svo upp í það, að stefnt var að því að halda veglega íþróttahátíð, og raunar þótti svo vel til takast að ákveðið var að halda slíka hátíð á 10 ára fresti. Það kom í minn hlut að vera formaður íþróttahátíða- nclndar í bæði skiptin. Þessar há- tíðir eru sem kunnugt tvíþættar, |t.e. vetraríþróttahátíð, sem hald- in hefur verð á Akureyri, og sum- arhátíð, sem haldin hefur verð í Reykjavík. Slík mót kreljast mik- ils undirbúnings, en það var þó áberandi mest vinna við fyrsta mótið, enda hefur aukin mann- virkjagerð á þessum árum' gert mótshaldið sjállt auðveldara. Þá má einnig nefna í sambandi við sérstök verkefni, að það hefur komið í minn hlut að vera farar- stjóri íslenska Olympíuliðsins á tveim síðustu Ólympíuleikum, í Moskvu og í Montreal. Þetta sem talið hefur verðinupp í þessu viðtali hingað til, Sveinn, má nánast allt flokkast undir hálf- gert puð, en hvað með skemmti- legri hliðar á starfinu? Þar vil ég nelna heimsóknir út á land til héraðssambanda og íþróttabandalaga, þar kynnist maður mörgu ágætu fólki og einn- ig starli félaganna, en þetta er al- veg nauðsynlcgt fyrir þá sem í for- svari eru. Persónuleg kynni og tengsl eru nauðsyn svo árangur náist í starfinu. Anægjulegar stundir eru raunar allar þær stundir, þegar íþróttastarfið gengur vel. Nú er það staðreynd, Sveinn, að íþróttastarfið í landinu hefur aukist gífurlega á undanförnum árum, sem sést t.d. á því að iðk- endur voru árið 1960 um 20 þús- und en 1980 um 80 þúsund. Hvernig gengur að mœta þessari fjölgun og auknum kröfum sem lienni fylgja. Til þess að íþróttahreyfingin á íslandi geti talist alvöruíþrótta- SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.