Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 14
þú œttir möguleika á að setja heimsmet? ,,Eg var kosinn IþróUamaður ársins 1978 og þá gaf ég yíirlýs- ingu um að ég ætlaði að setja heimsmet í hnébeygju. En stuttu síðar var það met slegið það rösk- lega að möguleikar mínir minnk- uðu mikið á að ná því. En heims- metið í réttstöðulyftunni hafði ég ekki hugsað svo mikið um, en leiddi þá hugann fljótlega að því að þar mætti bæta um betur.” Hvað leið langur tímifrá því að þú byrjaðir að hugsa um að setja metið einmitt á þessu móti þar til það varíhöfn? „Þegar ljóst var að ég færi ekki á heimsmeistaramótið sem fram fór í Texas, vegna meiðsla sem ég hefátt við að stríða í öxl, þá tók ég þá stefnu að reyna við heimsmetið í staðinn og fékk að keppa í hléi á Norðurlandamóti unglinga sem fram fór í Laugardalshöll í Reykjavík 1. nóvembersl. Égæíði með þessa mettilraun eina í huga um í um 3 mánuði fyrir mótið. En það hefði vissuleea verið skemmtilega að fara á heims- meistaramótið og slá metið þar, en um það var ekki að ræða vegna meiðslanna. Mig langar til að skjóta því hér að, að heimsmetið mitt stóðst allar árásirnar á heimsmeistaramótinu sem fram fór stuttu eftir að ég setti metið. Það var Bandaríkjamaður sem reyndi að bæta metið, en tókst ekki.” Hefur það einhverju breytt fyr- ir þér, Skúli. að vera orðinn heimsmethafi? ,,Nei, enda þætti mér það óeðli- legt að maður yrði allur annar maður eftir að hafa sett met eins og þetta. Eg var líka alveg viðbúinn því að mér tækist þetta og hafði gefið yfirlýsingar fyrir mótið unr að ég ætlaði að setja hcimsmet. Mörg- um þótti þetta bíræfni, en mér finnst allt í lagi að gefa yfirlýsing- ar um livað maður ætlar sér ef maður á góða möguleika á að geta staðið við þær. Stundum tekst að standa við þetta og stundum ekki. Eina breytingu verð ég þó að við- urkenna að hafi orðið á hjá mér, en það er ásókn ýmissa fyrirtækja í að íá mig til að auglýsa vörur sínar, t.d. matsölustaðir, mat- vælaframlciðendur og fatafram- leiðendur. Eg er að byrja að koma fram í auglýsingu fyrir appelsínu- drykkinn 'fropicana um þessar mundir og fæ í staðinn ókeypis tropicana og protein frá framleið- andanum. Annan fjárhagslegan gróða hef ég nú ekki haft af afrek- um mínum.” Hvernig var tilfinningin að vera orðinn heimsmethafi? ,,Frá því að ég sleppti lóðunum og þar til merki kom um að lyftan væri lögleg liðu um 3 sekúndur. Mér fannst þessar sekúndur vera eins og heil klukkustund, en þegar merkið kom, „löglegt”, þá vissi ég ekki hvað ég gerði, ég lét eins og fáraður, en þetta var sigurvíma sem rann af manni eftir nokkrar mínútur.” Afhverju keppir þú alltaf fyrir UÍA? „Ég er fæddur Austfírðingur, ólst upp á Fáskrúðsfirði. I upphaíi ferils míns ákvað ég að að keppa aldrei fyrir annað félag en UIA. Mér finnst ócðlilegt að keppnis- menn flakki á milli félaga nema það hafi verulega þýðingu árang- urslega og fjárhagslega séð. UIA hefur stutt mig eins og það hcfur getað hverju sinni ogvil égkomaá framfæri þökkum til UIA og Austfirðinga fyrir þann stuðning. Ég hef orðið var við að Austfirð- ingar eru stoltir af mér, og þykir mér vænt unt það.” Hvaða þýðingu hefur íþrótta- iðkun fyrir þig? „Hún gefur mér lífsfyllingu, ég hef ekki annað að lifa fyrir, og ég held áfram að lifa fyrir íþróttirnar þó áhuginn hafi lítillega dofnað vegna meiðsla sem hafa háð mér nokkuð lengi. Iþróttirnar halda mönnum cinnig frá óreglu, þó ég teljist ekki alveg heilagur í þeim efnum.” Hvað gætirðu ímyndað þér dð þú værir, ef þú hefðir ekki orðið lyftingamaður? „Mér fannst ég alltaf haf’a hæfi- leika til þess að verða spretthlaup- ari og heíði Iíklega orðið það ef ég hefði ekki farið út í lyftingar. En um önnur áhugamál en íþróttirn- ar hefur eiginlega aldrei verið að ræða.” Viltu ráðleggja ungu íþrótta- fólki eitthvað sem þú telur að geti orðið því til framdráttar? „Númer eitt er að halda sig frá órcglunni, númer tvö að vanmeta aldrei sjálfan sig eða andstæðing sinn. Númer þrjú að vera alltaf drengilegur í keppni og leitast frekar við að hjálpa andstæðingn- unt en draga úr árangn nans.” Skinfaxi þakkar Skúla kærlega fyrir spjallið og óskar honum til hamingju með nýsett heimsmet. Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla ogfarsæls komandi árs Ferdaskrifstofan Utsýn sími 26611 ^ 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.