Skinfaxi - 01.12.1980, Qupperneq 20
þess að vita hvort ekki er hægt að
íá meiri virkni og sveitafélögin sjái
þörfina á því að bæta aðstöðuna.
Toppurinn í frjálsíþróttunum
var svo að sjálfsögðu Meistara-
mót Vestíjarða. Það var haldið í
Bolungarvík í umsjá Umf. Bol-
ungarvíkur. Þetta var geysilega
skemmtilegt mót og mikil stemm-
ing. Mér íinst ánægjulegt að sjá
þær framfarir sem orðið hafa á
síðustu 6 árum.
Einnig vorum við með á okkar
vegum Vestljarðamót í frjálsum
15— lö ára. Eg \ il einnig minnast
á Meistaramót Vestíjarða í sundi.
Það væri mjög ánægjulegt ef það
gæti haldið áfram.
Hvernig er lífið í félögunum?
Eg verð að segja að þau séu öll
lifandi en þó mismunandi vel.
Sum félög hafa verið lifandi f'rá
stofnun. Sveitafélögin hafa slltaf
verið betúr starfandi en þéttbýlis-
félögin óg þá með hin almennu
félagsstörf önnur en íþróttir. Það
hefur borið mest á hinum mikla
áhuga á félagssvæði íþróttafélags-
ins (iretlis á Flateyri. Þeir hölðu
síðasta sumar íþrótta- og lcikja-
námskeið sem var mjög fjölsótt.
Steinunn (juðnadóttir er líka góð-
ur íþróttakennari og halði góð
áhrifá unglingana og það fólk sem
að baki þeim stóð, fullorðið
heima, mæður og feður. Það er
stórt atriði að hafa gott samband
þar á milli og það sýndi sig í sum-
ar hvað hægt er að komast langt
þegar áhuginn hjá fullorðna fólk-
inu er fyrir hendi. A l'lateyri er
aðeins íþróttavöllur en sundlaug
hafur verið í byggingu í mörg ár.
A meistaramóti Vestljarða í suudi
fengum við 1 stig og það vildi svo
einkennilega til að það kom Irá
Flateyri. Það ætti að vera lyfti-
stöngog hvatning til sveitarstjórna
í Onundarlirði að ljúka við sund-
laugarbygginguna. Það var byrj-
að á henni lyrir mörgum árum en
það er búið að vera þræluepli
hvernig hún á að vera og það eru
íbúarnir sem líða fyrir þann vand-
ræðagang. Þó svo að Grettir sé svo
ofarlega í mínum huga þá hafa
önnur félög verið starfandi, þó
þau hafi ekki verið eins hátt
spennt, og sent ungmenni lil að
taka þátt í íþróttunum. Við höf-
um farið á þau mót út af svæðinu
scm okkur var ætlað að taka þátt í,
3. deild i frjálsum íþróttum á
Er Jón ad flytja? Já að vísu, en í þetta sinn
flytur hann starfsfólk UMFÍ.
Blönudósi og Íþróttahátíð í
Rcykjavík.
Var fjölmenn þátttaka HVÍ í
íþróttahátíð ÍSÍ?
Það var rnjög ánægjulegt fyrir
mig að taka þátt í hópgöngunni
inn á svæðið og vita að við áttum
19 ungmenni sem gengu undir
merki HVI auk þeirra 9 sem
gengu undir öðrum merkjum. I-
þróttahátíð eru einskonar aðrir
ólympíuleikar okkar því landsmót
UMFI eru alltaf í mínum huga
sem ólympíuleikar okkar íslend-
inga.
A íþróttahátíð voru reknar
sumarbúðir og þar voru 9 ung-
menni. Verulegur hópur tók síðan
jtátt í íþróttunum þó ekkert hafi
stigið orðið. Það kemur kannski til
af því að við erttm ekki komnir
með vellina í form á þessum tíma
ogaðeins 1 íþróttahúseríallrisýsl-
unni. Það er einn þátturinn sem
stendur á móti hinu frjálsa í-
þróttastarii þegar skólarnir
standa ekki í slikki sínu í þ\ í sem
þeim ber að framkvæma þar sem
íþróttir eru annarsvegar. íjtrótta-
kennsla hefur farið fram í felags-
heimilum sumstaðar en það er
20
SKINFAXI