Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 28
Frá Faudsmótsnefud A sambandsráðsfundinum sem haldinn var á Hrafnagili í Eyja- firði urðu miklar umræður um landsmótið nœsta sumar. Lanus- mótsnefnd UMSE gerði þar grein fyrir störfum sínum og kynnti fundarmönnum þá aðstöðu sem landsmótið munfá til umráða. Gerður hefur verið samningur við Akureyrarbæ um afnot af íþrótta- og skólamannvirkjum bœjarins. Iþróttasvœði KA og Þórs verða einnig til reiðu, svo og mannvirki Menntaskólans á Akureyri, eftir nánara samkomulagi. Hér á eftir verður aðstöð- unni lýst nokkuð. Númerin vísa til myndanna á blaðsíðu íþróttavöllur flkureyrarbæjar við Glerórgötu. (1) A honum fer fram öll keppni í frjálsum íþróttum. Þar eru fjórar hlaupabrautir og önnur aðstaða til keppni hin besta. Á grasvellin- um mun a.m.k. fara fram úrslita- leikurinn í knattspyrnu. Ráðgert er að mótssetningin verði þar, einnig hátíðarsamkoma og móts- slit. íþróttahöllin við Þórunnor- stræti. (2) Enn er óvíst hvaða aðstæður verða fyrir hendi í þessu mikla í- þróttahúsi, sem er í byggingu og unnið er við af fullum krafti, en þess er fastlega vænst, að bygg- ingin verði komin á það stig, næsta sumar, að unt verði að hafa þar keppni í einhverjum greinum knattleikja og samkomuhald geti lárið þar fram. Áætlað er að á laugardagskvöld, þ.e. 11. júlí 1981, verði þar kvöldvaka með Ijölbreytiu efni og gert er ráð fyrir því að þar fari fram dansleikir í sambandi við mótið. I húsinu er salur sem er 27x45 m, sem skipta má í þrennt. I kjall- ara, til hliðar við salinn og um- hverfis áhorfendapallanna eru miklar vistarverur sem eru hugs- aðar fyrir ýmsa starfsemi. T.d. ýmsar íþróttir, þrekæfingar, gufu- bað, kaíliteríu og gistiaðstöðu, auk aðstöðu til fundarhalda. Áhorfendasvæðin taka 800 manns auk þess sem 600 komast fyrir til hliðar í salnum. íþróttaskemman ó Oddeyri. (3) Vallarstærð 20x33 m og áhorí'- endasvæði fyrir 450 manns. íþróttahúsið við Laugargötu. (4) I húsinu eru 2 salir 8x 17 m. íþróttahús Glerórskóla. (5) Vallarstærð 18x33 m. íþróttahús Menntaskólans. (6) vallarstærð 9x17 m. I þessum húsum er aðstaða til keppni í öllum innanhússíþrótta- greinum ef á þyrí'ti að halda. í Iþróttaskemmunni er einnig Formaður landsmótsnefndar Þóroddur Jóhannsson ásamt íþróttafulltrúa Akureyrar- bœjar Hermanni Sigtryggssyni. 28 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.