Skinfaxi - 01.12.1980, Qupperneq 30
Iþróttahöllin skoðuð, fulltrúar á sambandsráðsfundi ganga til áhorfendapallanna.
möguleiki á því að hafa kvöldvöku
og dansleiki.
íþróttasvæði Kfl við lundarskóla.
íþróttasvæði Þórs við Glerór-
skólo.
Knottspyrnuvöllur Menntaskólans
við Þórunnarstræti.
A þessum svæðum munu flestir
knattspyrnuleikirnir fara fram.
Ekki er hægt að segja til um það,
enn sem stendur, hve margir leik-
ir munu fara fram á grasvöllum.
Iðnskólinn við Þórunnar-
stræti.
Þar er ákveðið að hafa stjórn-
stöð mótsins og upplýsingamiðl-
un. Skólinn er rúmgóður og þægi-
legur og staðsetning hans góð
miðað við fyrirliugaða keppnis-
staði og tjaldbúðir. I skólanum er
ágætur salur, sem hægt er að nýta
til fundahalda í sambandi við
mótið.
Gagnfræðaskólinn við Laugar-
götu.
Bornoskóli flkureyrar við €yrar
londsveg.
Lundarskóli við Hrísalund.
Glerórskóli við Höfðahlíð.
I öllum þessum skólum eru
margar kennslustofur og salir.
Þar geta héraðssamböndin og ein-
stök íélög fengið aðstöðu til funda-
halda, upplýsingaþjónustu oíl.
(iistiaðstaða er þar einnig mögu-
leg. Gert er ráð fyrir því að gisti-
aðstaðan verði nýtt, efvcður verð-
ur óhagstætt. Við skólana eru
malbikuð svæði og á þeim gæti
t.d. handknattleikur kvenna larið
l'ram.
Húsmæðroskólinn við Þórunnor-
stræti.
Þar gæti farið fram keppni í
tveim greinum starfsíþrótta.
Sundloug Akureyrar við Þingvalla-
stræti. (9)
I henni mun öll sundkeppni
mótsins fara fram og mögulegt er
einnig að koma þar fyrir sýningar-
atriðum.
Mötuneyti Menntaskólans ó flkur-
eyri.
Ákveðið er að bjóða upp á
mötuneyti fyrir keppendur og
starfsmenn mótsins og eru allar
horfur á því að mötuneyti M.A.
íáist undir þá starfsemi.
Möðruvellir — rounvísindastofnun
M.fl.
I þessu húsi er rúmgóður salur
og snyrtingar. Þetta hús er til
reiðu og mun verða notað.
Tjoldstæði.
Góðar líkur eru á því að næg
tjaldstæði verði fyrir alla kepp-
endur mótsins á tjaldstæði bæjar-
ins við Þórunnarstræti og í næsta
nágrenni. Hins vegar verða al-
menningstjaldstæði á gamla golf-
\ellinum við Þórunnarstræti
sunnanvert, eða í um 600 m íjar-
lægð frá Iþrótahöllinni nýju.
Landsmótsnefnd hefur alls
staðar fengið hinar bestu viðtökur
og fyrirgreiðslu hjá þeim mörgu
aðilum, sem leitað hefur verið til í
sambandi við aðstöðu fyrir mótið.
Þeirn öllum eru hér með færðar
bestu þakkir, ekki síst Hermanni
Sigtryggssyni, íþróttafulltrúa
Akureyrarbæjar, sem reynst hefur
nefndinni ómetanlegur stuðn-
ingsmaður.
Forkeppni í knattspyrnu er lok-
ið fyrir nokkru. Eftirtalin lið kom-
ust áfram í aðalkeppni og skv.
rcglugerð Landsmótsins skiptast
þau þannig í riðla:
A-riðill: UMSB - UÍÓ - UÍA -
UMFN.
B-riðill: HSH - UMSS - HSÞ -
UMFK.
Ekki er lokið við að forma dag-
skrá mótsins endanlega, en leitað
hefur verið til margra aðila um
innlegg í hana og yfirleitt fengist
góðar undirtektir.
I sambandi við heildafyrir-
komulag mótsins telur Lands-
mótsnefndin æskilcgt að það verði
mcð líku sniði og verið hefur.
Verið velkomnir á
17. landsmót UMFÍ.
30
SKINFAXI