Skinfaxi - 01.02.1981, Blaðsíða 6
A þessu ári má segja að enginn ritstjóri hafi
verið starfandi hjá Skinfaxa. I upphaii árs þegar
Gunnar Kristjánsson lét-af störfum var skipuð
ritnefnd til að sjá um útgáfu blaðsins. Þannig
þróuðust svo málin að ég tók að mér einskonar
útgáfustjórn þ.e. koma blaðinu í gegn um prent-
un. Þetta hefur á vissan hátt verið erfitt starf, fyrir
utan venjulegan vinnutíma, en ákaflega ánægju-
legt að fylgja svona blaði ylir öll vinnslustig.
Helstu vandamál \ ið svona starf er að fá allt
efni skrifað á tilsettum tíma og enn meira að fá
góðar myndir með greinunum. Þess vegna er
nauðsynlegt að íá góðan stuðning við það verk og
raunar ætti það að vera hagsmunamál allra aðila
því efnið fær tvöfalt gildi með góðri mynd. Um
iKjkkurra ára skeió höfum við haft ákaflega á-
nægjulegt samstarf við prentsmiðjuna Prentval
sem hefur prentað blaðið síðan farið var að offset-
prenta það. \ú í haust hófum við viðskipti við
nýstofnað fyrirtæki Leturval sem sér um sctn-
ingu og útlit blaðsins. \ú hafá málin skipast
þannig að aftur hefur verið ráðinn ritstjóri að
blaðinu. Hann heitir Steinþór Pálsson og hefur
starfað um skeið á skrifstofu UMFÍ. Steinþór er
sonur Páls Aðalsteinssonar fyrrverandi fcjrmanns
UMSK og býr í foreldrahúsum. Hann er 20 ára
og lauk stútentsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð í desembcr s.l. Steinþór hefur verið
Steinþór Pálsson
virkur lélagi í Umf. Aftureldingu í Moslellssveit
og iðkað knattspyrnu, handbolta, borðtennis cjg
11. íþróttir og nteðal annars keppt á landsmóti. Að
auki á hann sæli í stjórn Knattspyrnudeildar lél-
agsins.
Um leið cjg ég þakka öllum sent lagt hafá fram
aðstoð við útgáfu Skinfáxa s.l. ár býð ég Steinþór
velkominn til stara lýrir blaðið. Eg vænti þess að
við ungmennafélagar sýnum honum að hann
stendur ekki einn. Látum hann hafa nóg af efni.
ÞETTA ER OKKAR BLAÐ.
Diðrik Haraldsson.
6
SKINFAXI