Skinfaxi - 01.02.1981, Qupperneq 12
H
E
L
G
I
B
J
A
R
N
A
S
o
Áhugi almennings fyrir körfuknattleik fer sífellt vaxandi. Frá leik í Borgamesi.
Kört'ukuattleikur
imgmcmiafélagauna
Til fróðleiks fyrir lesendur
Skinfaxa hefi ég tekið saman yfir-
lit um körfuknattleik innan ung-
mennafélaganna þ.e. þann hlut-
ann sem kemur upp á yfirborðið
með þátttöku í Islandsmótum.
Eins og fram kemur er hlutur ung-
mennafélaganna heldur rýr í
dcildakeppninni en fer vaxandi í
yngri flokkunum og hefur skipting
yngri (lokkana í riðla eftir lands-
hlutum haft þar mikil áhrif.
Greinilegt er að þau félög sem
sinna vel yngri Ilokkastarfi upp-
skera vel og ástæða er til að hvetja
þau ungmennafélög sem áhuga
hafa á góðri inniíþrótt ylir vetur-
inn og hægt er að stunda í litlum
sölum, á að líta t.d. lil starfsemi
Lngmennafélags Njarðvíkur og
byrja á yngstu ílokkuin og sinna
þeim vel, bíða síðan þolinmóðir
og uppskeran verður undraverð
þegar fram í sækir. Af 4497 iðk-
endum körfuknattleiks á landinu
eru 2390 innan ungmennafélags-
hreyílngarinnar, eða 53,1%. Sú
staðreynd að af tuttugu og tveim-
ur félögum sem þátt taka í deilda-
keppninni skuli aðeins vera sex
félög innan UMFÍ er athyglisverð
og er engan veginn í samræmi við
hlutfall iðkenda innan UMFÍ. En
athugum nú stöðu okkar í hinum
einstöku þáttuin innan starfsemi
KKÍ:
Stjórnun
Ofugt við það sem gerist hjá
Ilestum hinna sérsambandanna
hafa ungmennafélögin veruleg í-
tök í stjórnun Körfuknattleiks-
sambandsins því tveir af fimm
stjórnarmönnum sambandsins
eru ungmennafélagar þ.e. þeir
Kristbjörn Albertsson úr Njarð-
vík og Guðni Ölversson úr
Grindavík. Stefán Ingólfsson er
formaður KKÍ.
Ungmennafélögin hirða þó
ílest hver ekki um að senda full-
trúa á þing KKÍ og er það miður,
því þar er hægt að hafa áhrif á
gang mála á byrjunarstigi og
koma fram með skoðanir sínar og
áhugamál varðandi íþróttina.
Úrvalsdeild
Umf. Njarðvíkur heldur uppi
merki ungmennafélaganna í úr-
valsdeildinni nú sem fyrr og er
félagið, nú þegar þetta er ritað,
efst af sex liðum úrvalsdeildar-
innar og því óumdeilanlega besta
körfuknattleiksfélag íslands um
þessar mundir.
UMFN hefur verið með ís-
landsmeistaratitilinn innan seil-
ingar í mörg ár en aldrei tekist að
12
SKINFAXI