Skinfaxi - 01.02.1981, Side 19
Gísli Sigurðsson, UMSS.
Elvars, s.s. Aðalstein Bernharðs-
son, Gísla Sigurðsson oíl.
Boðhlaupssveitirnar voru frek-
ar slakar og árangur í boðhlaup-
unum í samræmi við sprett-
hlaupaárangurinn. Eg á von á að
um mikið framfarastökk verði að
ræða á næsta ári í boðhlaupunum.
Kristján Harðarson, UMSK
Stökkgreinar
Kristján Harðarson var í sér-
ílokki í langstökkinu og varð m.a.
7. á Norðurlandamóti unglinga.
Kristján er efni í stökkvara á
heimsmælikvarða. Hefur mikinn
hraða, stökkkraft og all góða
tækni. Kristján þarf nú að taka
æfingar föstum tökum.
Guðmundur Sigurðsson
UMSE millivegalengdalilaupari
gerði nú að mér finnst dálítið grín
að lang- og þrístökkvurum með
því að ná 2. sæti í langstökki og 5.
sæti í þrístökki á UMFI skránni.
Kári Jónsson sýndi miklar fram-
farir í sumar og keppti bæði í
landsliði og unglingalandsliði Is-
lands. Hann hefur góða tækni en
vantar meiri hraða og styrk í fæt-
ur.
Kári verður eflaust erfiður í þrí-
stökkinu næsta sumar. Helgi
Hauksson æfir vel og einnig
Guðmundur Nikulásson og verða
þeir vafalaust liarðir í horn að
taka. Einnig gæti Rúnar Vil-
hjálmsson, Pétur Pétursson og
Stefán Kristmannsson gert skurk
í þrístökksmálum efþeir æfa vel.
Unnar Vilhjálmsson var lang-
öruggastur hástökkvaranna og
keppti bæði í landsliði og ungl-
ingalandsliði. Unnar hefur nægan
styrk til að stökkva 2.10—2.20 en
vantar tilfinnanlega tækniþjálfun.
Stefán Friðleifsson stendur í stað.
Karl W'est og Hafsteinn Jóliann-
esson eru á sínum stað. Breiddin í
hástökkinu er að aukast verulega
og stukku nú í fyrsta skipti tveir
UMEÍ menn yfir2.00 ogOstökkv-
arar yfir 1.85 m svo hástökkið er
greinilega á framfarabraut með
unga menn á uppleið s.s. Hafstein
Þórisson, Kristján Harðarson og
Kristján Sigurðsson.
Karl W'est stökk 4.16 á stöng og
var í sérflokki. Karl er sigur-
stranglegur á Landsmóti en Guð-
mundur Jóhannesson, Hafsteinn
Jóhannesson, Eggert Guðmunds-
Guðmundur Nikulásson, HSK.
son, Einar Óskarsson og Torfi
Rúnar Kristjánsson verða sjálf-
sagt ekki auðveldir viðureignar.
Því miður hefur enginn af þessum
mönnum sinnt æfingum sem
skyldi fyrir stangarstökkið.
Kastgreinar
Pétur Pétursson sýndi mjög at-
t
Pétur Pétursson, UÍ A.
SKINFAXI
19