Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1981, Page 22

Skinfaxi - 01.02.1981, Page 22
Svava Grönfeldt, UMSB. Stökkgreinar Svava Grönfeldt bætti nú loks UMFI-met Haídísar Ingimars- dóttir sem staðið hafði allt frá 1971. Svava er í sérílokki í lang- stökkinu og því mjög sigurstrang- Ieg eflitið er til Landsmóts. Hólm- fríður Erlingsdóttir stendur alltaf fyrir sínu. Nanna Sif Gísladóttir stórbætti sig á árinu og getur enn betur með meiri æftngu. Allar þær stúlkur sem eru í 6 efstu sætunum nú gætu gert það gott næsta sum- arefæfingum verðursinnt. María Guðnadóttir er í sér- fiokki í hástökkinu og bætti sig verulega frá síðasta ári. Hún sigr- aði m.a. í Kalottkeppninni og á Meistaramóti Islands. Iris Grön- feld náði ágætis árangri í hástökk- inu miðað við að þessi grein er aukagrein hjá henni. Þórdís Hrafnkelsdóttir og Nanna Sif Gísladóttir bættu sig verulega, en þurfa miklu meiri tækniþjálfun til að um áfram- haldandi Iramlarir verði að ræða. Hástökkið er mun betra á þessari skrá en það var 1979. Kastgreinar Helga Unnarsdóttir keppti með landsliði Islands í fyrsta skipti síðastliðið surnar og er nú efst á blaði í sinni aðalgrein kúlu- v'arpinu. Helga er mikið efni sem þarf að leggja rækt við tækniþjálf- unina. Helga ætti að setja sér það mark strax á næsta sumri að kasta 13.50 m. Sigurlína Hreiðarsdóttir bætir sig enn og verður fróðlegt að sjá liana keppa við Helgu á næsta sumri. Sigurlína hefur mikla reynslu, sem eflaust á eftir að verða henni drjúg hjálp í stórum mótum s.s. Landsmóti. Elín Gunnarsdóttir keppti eins og svo margir fleiri í fyrsta skipti í landsliði s.l. sumar. Elín hefur náð all sæmilegri tækni, en vantar tilfinnanlega meiri snerpu og kraft. Bæti Elín úr þessu verður hún fyrst UMFÍ kvenna til að kasta 40 m íris æfir lítillega kringlukastið og vantar því mikið upp á að tæknin sé boðleg, en snerpuna og kraftinn vantar ekki. Sigurlína og Helga eru á svipuð- um slóðum í kringlukastinu líkt og kúluvarpinu. I þessari grein vantar þær báðar meiri kast- og Þórdís Hrafnkelsdóttir, UÍA (t.v.) og íris Grönfeldt, UMSB. tækniþjálfun. Helga Björnsdóttir er mikið efni kastaði kringlunni 31.36 m aðeins 14 ára gömul, hvað gerir hún á næstu árum? Mestu framfarirnar hafa áreið- anlega orðið í S|)jótkastinu og var sannarlega kominn tími til. íris bætti íslandsmet sitt frá í fyrra um 1.50 meter. íris er dugleg við æfingar og tel ég mjög líklegt að lnin kasti vel ylir 50 metra á næsta ári. María Guðnadóttir vaknaði loks af löngum dvala í spjótkast- inu og kastaði yíir 40 metra í fyrsta skipti. Birgitta Guðjóns- dóttir HSK kom bæði sér og öðr- um verulega á óvart með því að kasta tvívegis yftr 40 metra og bætti árangur sinn síðan í fyrra um 9 metra. Birgitta er efnileg svo ekki sé sterkar til orða tekið. Með markvissri þjálfun í vetur og vor eru 45—50 m ekki óraunhæft tak- mark. Hildur Harðardóttir er einnig mjög efnilegur kastari sem getur náð langt með því að leggja hart að sér við æftngar. Fjölþrautir Ingveldur Ingibergsdóttir, Elín Blöndal og Kristín J. Símonar- dóttir allar í UMSB voru þær einu sem fóru í gegnum fimmtarþraut. Þær eru allar ungar og lítt reyndar í þessari grein eins og árangurinn ber með sér. Lokaorð Enda þótt afrekin hafi ekki ver- ið jafn góð í öllum greinum 1980 er nokkuð víst að um miklar fram- farir og grósku verður að ræða á Landsmótsárinu 1981. Keppnin á Landsmótinu verður örugglega harðari en nokkurtíma áður. íþróttafólkið verður því að leggja mun meira á sig við æfingar en áður til að geta gert sér vonir um að vcrða í fremstu röð. Gott íþróttafólk það er mikið framundan 1981. Þráinn Hafsteinsson. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.